Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um að stofnanir bæjarins fái fjárframlög til að halda árshátíð/skemmtun í smærri hópum.

Málsnúmer 2203335

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (901). fundur

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita stofnunum bæjarins fjárframlög til að geta haldið árshátíð hver í sínu lagi.“

Greinargerð.
Vegna Covid 19 hefur ekki verið hægt að halda árshátíð bæjarins síðustu þrjú ár. Til að koma til móts við stofnanir bæjarins er nauðsynlegt að veita þeim fjármagn til að hver eining geti haldið sína árshátíð. Starfsmenn hafa sýnt einstaka þrautseigju og verið lausnamiðaðir á þessum fordæmalausu Covid-tímum og því tilvalið að sýna þeim þakklæti í verki með fjárframlagi til “árshátíðarhalds?.

Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til að fresta afgreiðslu tillögunnar og taka hana til umræðu í haust þar sem verið er að skoða möguleika á að halda sameiginlega árshátíð bæjarstarfsmanna í haust.

Tillaga Gunnars var samþykkt með átta atkvæðum (AG,ÁHJ,GVG,JS,GE,GS,SS,ÞGR) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).

Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Gunnar Valur Gíslason ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi afgreiðslu tillögunnar.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi afgreiðslu tillögunnar.