Beint í efni

Meðferðarheimilið í Krýsuvík - Beiðni um fjárhagsstuðning

Málsnúmer 2202480

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

3. fundur

Erindi um fjárhagsstuðning til Krýsuvíkursamtakanna tekið til umfjöllunar að beiðni bæjarráðs. Fram kemur í framlögðum bréfum að samkvæmt úttekt hafi árangur meðferðar í Krýsuvík reynst nokkuð góður og fjöldi þeirra skjólstæðinga sem nái fótfestu og þeirra sem eru án áfengis og vímuefna 5 árum eftir meðferð sé með því hæsta sem gerist hérlendis. Meðferð stendur yfir í 6 mánuði hið minnsta og samkvæmt samtökunum stendur fjármögnun ekki að fullu undir meðferðinni. Því leita samtökin nú til sveitarfélaganna um greiðslu mótframlags með skjólstæðingum sveitarfélaganna og/eða styrk að fjárhæð 3.000.000 kr.

Erindi um fjárhagsstuðning til Krýsuvíkursamtakanna tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð beinir því til starfsmanna fjölskyldusviðs að taka til skoðunar greiðslur með skjólstæðingum sviðsins í endurhæfingarúrræðum við endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

9. (2016). fundur

Bæjarráð vísar erindinu til nánari umfjöllunar fjölskyldusviðs og fjölskylduráðs. Jafnframt er erindinu vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

Fylgiskjöl