3. fundur
3. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
16.03.2022
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðrún Willardsdóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Umsókn um fjárhagsaðstoð - námsstyrkur
Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022.
Tekið er fyrir mál nr. 2203083, umsókn um námsstyrk. Fjölskylduráð fjallar um málið og bókar nánar um það í trúnaðarmálahluta fundargerðar. Umsókn um námsstyrk á vorönn 2022 er synjað.
02
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ
Staða á endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.
Í gildi eru reglur um fjárhagsaðstoð í Garðabæ sem voru teknar í notkun árið 2018 og hafa ekki sætt heildarendurskoðun frá þeim tíma. Mikil reynsla er komin á notkun reglnanna og tímabært að skoða reglurnar með hliðsjón af þeirri reynslu. Starfsmenn fjölskyldusviðs hafa hafið þá vinnu og leggja fyrir ráðið fyrstu drög að breytingartillögum. Framundan er einnig innleiðing á stafrænni fjárhagsaðstoð í Garðabæ og fyrir liggur að endurskoðun reglnanna þarf að taka mið af þeirri vinnu. Stafræn fjárhagsaðstoð hefur áhrif á umsóknarferli og umsýslu og stuðlar að betri þjónustu, aukinni sjálfvirkni og skjótari afgreiðslu mála.
Fjölskylduráð mun fjalla frekar um málið á næsta fundi ráðsins.
Fylgiskjöl
03
Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2022
Mál nr. 1903268 lagt fram til kynningar, tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð febrúar 2022.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð í febrúar 2022 lagt fram til umræðu.
04
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2021
Lagt fram til kynningar niðurstöður árlegrar þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2021 og byrjun árs 2022. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins og gera samanburð þar ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.
Mál nr. 2201437, lagt fram til kynningar, þjónustukönnun Gallup 2021. Í meginatriðum er niðurstaðan jákvæð í helstu málaflokkum og íbúar í heildina litið ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í. Niðurstöður þeirra málaflokka er heyra undir fjölskylduráð (ánægja með þjónustu við eldri borgara, barnafjölskyldur og fatlað fólk) lækkar lítillega á milli ára. Þjónusta við eldri borgara og barnafjölskyldur er þó yfir landsmeðaltali en þjónusta við fatlað fólk er lítillega undir landsmeðaltali. Fjölskylduráð hvetur starfsmenn á fjölskyldusviði til að rýna frekar í niðurstöðu þjónustukönnunarinnar og nýta sem tækfæri til úrbóta á sviðinu.
05
Tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraðra
Mál nr 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lagt fram til kynningar og umræðu.
Með þingsályktun um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða eru sett fram stefnumarkandi markmið þar sem horft er heildrænt á alla þætti fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu, almenna þjónustu og forvarnir, stuðning við að búa sjálfstæðri búsetu á eigin heimili og loks hjúkrunarheimili, þ.e. þjónustukeðjunnar í heild.
Horft er til mannfjöldaþróunar, forystu, þátttöku og virkni aldraðs fólks, samhæfingar, nýsköpunar og tækni, og mannafla og fræðslumála í þjónustunni.
Mál nr. 2201239, tillaga til þingsályktunar um mótun stefnu í heilbrigðisþjónustu við aldraða lögð fram til kynningar og umræðu.
06
Móttaka flóttafólks
Lagt er fram erindi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti varðandi móttöku flóttafólks sem barst 9.3.2022. Í bréfinu er leitað til sveitarfélagsins um þátttöku í verkefninu og óskað að áhugasöm sveitarfélög hafi samband við ráðuneytið.
Erindi til sveitarfélaga um móttöku flóttafólks tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð tekur undir bókun bæjarráðs um vilja til þátttöku í samstarfi við ráðuneytið og eftir atvikum önnur sveitarfélög vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Fylgiskjöl
07
Meðferðarheimilið í Krýsuvík - Beiðni um fjárhagsstuðning
Erindi um fjárhagsstuðning til Krýsuvíkursamtakanna tekið til umfjöllunar að beiðni bæjarráðs. Fram kemur í framlögðum bréfum að samkvæmt úttekt hafi árangur meðferðar í Krýsuvík reynst nokkuð góður og fjöldi þeirra skjólstæðinga sem nái fótfestu og þeirra sem eru án áfengis og vímuefna 5 árum eftir meðferð sé með því hæsta sem gerist hérlendis. Meðferð stendur yfir í 6 mánuði hið minnsta og samkvæmt samtökunum stendur fjármögnun ekki að fullu undir meðferðinni. Því leita samtökin nú til sveitarfélaganna um greiðslu mótframlags með skjólstæðingum sveitarfélaganna og/eða styrk að fjárhæð 3.000.000 kr.
Erindi um fjárhagsstuðning til Krýsuvíkursamtakanna tekið til umfjöllunar. Fjölskylduráð beinir því til starfsmanna fjölskyldusviðs að taka til skoðunar greiðslur með skjólstæðingum sviðsins í endurhæfingarúrræðum við endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð.