Tillaga um móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (2016). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga sem bæjarstjórn vísaði til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
„Bæjarstjórn staðfestir vilja Garðabæjar til þess að taka þátt í verkefninu og taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Hafinn er undirbúningur fyrir móttöku flóttafólks að hálfu ríkisins og mörg sveitarfélög þegar látið vita af vilja sínum til þátttöku í verkefninu. Garðabær er ríkt samfélag og það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að styðja við fólk í neyð líkt og nú ríkir í Úkraínu.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga og eiga viðræður við viðkomandi ráðuneyti um fyrirkomulag á móttöku á flóttafólki frá Úkraínu. Jafnframt skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga sem hefur farið fram á endurskoðun á samstarfssamningi við ríkið um móttöku flóttafólks.
Bæjarráð tekur undir samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem samþykkt var einróma á fundi sem haldinn var 25. febrúar sl. en þar er tekið undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, um að evrópskir sveitarstjórnarmenn fordæmi brot á sjálfstæði og sjálfræði Úkraínu og lýsi yfir stuðningi og samstöðu með sveitarfélögum í Úkraínu og íbúum þeirra. Stjórn sambandsins hvetur kjörna fulltrúa í íslenskum sveitarfélögum til að undirrita yfirlýsinguna.