10. (2017). fundur
10. (2017). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.03.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2108710
01
Ársreikningur Garðabæjar árið 2021.
Ómar Gunnar Ómarsson, löggiltur endurskoðandi hjá Enor, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds mættu á fund bæjarráðs. Ómar Gunnar gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2021, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2021 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjarstjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 17. mars 2022 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 7. apríl 2022.
Málsnúmer 2203202
02
Tilkynning frá Stofnun stjórnsýslufræða stjórnmála varðandi skýrslu um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitarstjórnum á Íslandi, dags. 09.03.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2203237
03
Bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi móttöku flóttafólks, dags. 09.03.22.
Bæjarráð vísar í fyrri samþykktir vegna málsins og lýsir yfir vilja til þátttöku í samstarfi við ráðuneytið og eftir atvikum önnur sveitarfélög vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Málsnúmer 2203269
04
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi stöðu heimilislausra með fjölþættan vanda, dags. 11.03.22.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær taki þátt í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur um sameiginlega ráðningu á verkefnastjóra er vinni að undirbúningi, innleiðingu og framkvæmd verkefnis er varðar búsetuúrræði fyrir heimilislausa með fjölþættan vanda. Náist samkomulag um verkefnið er bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka vegna kostnaðar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201383
05
Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi drög að endurnýjun samstarfssamnings um skíðasvæði, dags. 20.01.22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn fyrir sitt leyti.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201384
06
Erindi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 20.01.22.
Afgreiðslu frestað þar sem málið er enn til umfjöllunar hjá umhverfisnefnd.
Málsnúmer 2203155
07
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi leyfi til að halda árshátíð Origo í Mýrinni, dags. 07.03.22.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2203246
08
Bréf Kópavogsbæjar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóðum við Nónsmára, dags. 10.03.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2203250
09
Drög að gjaldskrá fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks í Garðabæ 2022.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Málsnúmer 2202500
10
Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Vetrarmýri.
Lögð fram eftirfarandi tilboð í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Vetrarmýri.
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 32.339.200
VSÓ Ráðgjöf ehf kr. 32.674.000
Mannvit hf. kr. 32.188.000
Verkís hf. kr. 34.566.700
Strendingur ehf. kr. 24.050.000
Kostnaðaráætlun kr. 34.400.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Strendings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Málsnúmer 2202207
11
Tillaga að breytingum á reglum um námsstyrki og námsleyfi starfsmanna leikskóla.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um námsstyrki og námsleyfi starfsmanna leikskóla.
Málsnúmer 2203259
12
Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi atvinnutengda starfsemi á Garðatorgi.
Bæjarstjóri upplýsti um að samningur bæjarins um leigu á húsnæðinu tekur gildi 1. júní nk. og gildir í eitt ár. Í samningnum er framleiguheimild og mun verða rætt við núverandi aðila sem eru með starfsemi í húsnæðinu varðandi áframhaldandi leigu. Ákvörðun um slíkt þarf að liggja fyrir eigi síðar en í lok maí.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2203190
13
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi frumvarp um íbúakosningar sveitarfélaga í samráðsgátt, dags. 08.03.22.
Lögð fram.
Málsnúmer 2203256
14
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2022-2025, 415. mál., dags. 10.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203261
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.), 16. mál., dags. 10.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203226
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um fjöleignarhús (gæludýrahald), 57. mál., dags 09.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203150
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldstofn fasteignaskatts). 78. mál., dags. 07.03.22.
Lagt fram.
Málsnúmer 2203265
18
Bréf Golfklúbbsins Setbergs varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2022, dags. 11.03.22.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 443.539 til greiðslu fasteignagjalda árið 2022.