Heimilislausir með fjölþættan vanda - Bókun 537. fundar stjórnar SSH
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
5. fundur
Skýrsla um málefni heimilislausra er afurð samstarfs Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Markmið með verkefninu var að greina hóp þeirra einstaklinga sem teljast vera heimilislausir og móta tillögur um hvernig bæta megi þjónustu við þennan hóp með sameiginlegu átaki sveitarfélaganna. Bæjarráð vísaði skýrslunni til meðferðar fjölskyldusviðs og til kynningar í fjölskylduráði.
Skýrsla samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi er lögð fram til kynningar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2069). fundur
Skýrslan er samstarfsverkefni sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Markmið með verkefninu var að greina hóp þeirra einstaklinga sem teljast vera heimilislausir og móta tillögur um hvernig bæta megi þjónustu við þennan hóp með sameiginlegu átaki sveitarfélaganna.
Bæjarráð vísar skýrslunni til meðferðar fjölskyldusviðs og til kynningar í fjölskylduráði.
Bæjarráð Garðabæjar
03
10. (2017). fundur
Bæjarráð samþykkir að Garðabær taki þátt í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur um sameiginlega ráðningu á verkefnastjóra er vinni að undirbúningi, innleiðingu og framkvæmd verkefnis er varðar búsetuúrræði fyrir heimilislausa með fjölþættan vanda. Náist samkomulag um verkefnið er bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka vegna kostnaðar.