16. (2069). fundur
16. (2069). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
25.04.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu og málefni Sorpu bs. (Á fundinn mæta fulltrúar frá Sorpu bs.)
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs., Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu bs. og Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir, fjármálastjóri Sorpu bs.
Sigríður Katrín, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Sorpu bs. fyrir árið 2022.
Gunnar Dorfi, fór yfir undirbúning innleiðingar á nýju flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjórum úrgangsflokkun verður safnað við hvert heimili.
02
Samningur um úthlutun lóðar fyrir meðferðarheimili við Vífilsstaðavatn.
Lagður fram til afgreiðslu samningur við Ríkissjóð f.h. Barna- og fjölskyldustofu um úthlutun á lóð fyrir meðferðarheimili fyrir börn og ungmenni sem byggir á viljayfirlýsingu Garðabæjar, velferðarráðuneytis og Barnaverndarstofu, dags. 21. desember 2018.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
03
Bréf JSG lögmanna varðandi ábúðarréttindi jarða í Garðahverfi, dags. 28.03.23.
Í bréfinu er farið fram á að Garðabær leysi til sín ábúðarréttindi jarðanna Dysja, Garða, Hlíðar, Miðengi og Nýjabæjar.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að boða til viðræðna við bréfritara um erindið.
04
Tilkynning frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu varðandi loftslagsþolin sveitarfélög til framtíðar: fyrsta aðlögunaraðgerð íslenskra stjórnvalda, dags. 19.04.23.
Lögð fram.
05
Tilkynning frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um skýrslu samstarfsverkefnis í málefnum heimilislausra, dags. 19.04.23.
Skýrslan er samstarfsverkefni sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Markmið með verkefninu var að greina hóp þeirra einstaklinga sem teljast vera heimilislausir og móta tillögur um hvernig bæta megi þjónustu við þennan hóp með sameiginlegu átaki sveitarfélaganna.
Bæjarráð vísar skýrslunni til meðferðar fjölskyldusviðs og til kynningar í fjölskylduráði.
06
Tilkynning innviðaráðuneytisins um endanlega útgáfa grænbókar um húsnæðismál birt að loknu opnu samráði, dags. 18.04.23.
Í tilkynningunni kemur fram að með grænbókinni er lagður grunnur að fyrstu húsnæðisstefnu ríkisins til næstu 15 ára og aðgerðaráætlun til fimm ára.
07
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi drög að grænbók um sjálfbært Ísland til kynningar í samráðsgátt, dags 19.04.23.
Í tilkynningunni kemur fram að kynnt hafa verið í samráðsgátt drög að grænbók um sjálfbært Íslands. Um er að ræða fyrsta skrefið í mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun. Frestur til að skila umsögnum er til 29. maí nk.
08
Bréf Landskerfis bókasafna hf. varðandi aðalfund félagsins, dags. 17.04.23.
Lagt fram.
09
Samningur við Terra einingar ehf. um lausar kennslustofur við Garðaskóla og Urriðaholtsskóla.
Bæjarráð staðfestir leigusamning við Terra einingar ehf. um leigu á lausum kennslustofum fyrir Garðaskóla og Urriðaholtsskóla á grundvelli tilboðs sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 4. apríl 2023.
10
Umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að verða við erindi Brynju leigufélags ses. um greiðslu stofnframlags vegna kaupa á fjórum tveggja og þriggja herbergja íbúðum í Garðabæ árið 2023. Áætlað kaupverð er 247,5 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 29,7 mkr.
11
Opnun tilboða í viðgerðir og yfirlagnir gatna í Garðabæ 2023.
Eftirfarandi tilboð bárust í í viðgerðir og yfirlagnir gatna í Garðabæ 2023.
Colas Ísland ehf. kr. 91.597.483
Malbikstöðin Höfði hf. kr. 88.899.333
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 88.737.480
Malbikstöðin ehf. kr. 134.365.000
Kostnaðaráætlun kr. 90.031.545
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.