Samræming úrgangsflokkunar
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
9 (22-26). fundur
Innleiðing á nýju flokkunarkerfi hefst 22. maí
Innleiðing á nýju flokkunarkerfi kynnt. Innleiðing mun hefjast 22. maí 2023 í Garðabæ og taka um átta vikur. Með breyttu fyrirkomulagi verður sorp flokkað í plast, pappír, lífrænt og almennan úrgang.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2069). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs., Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu bs. og Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir, fjármálastjóri Sorpu bs.
Sigríður Katrín, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Sorpu bs. fyrir árið 2022.
Gunnar Dorfi, fór yfir undirbúning innleiðingar á nýju flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjórum úrgangsflokkun verður safnað við hvert heimili.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
8 (22-26). fundur
Farið var yfir stöðu samræmingu úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu. Innleiðing á nýju flokkunarkerfi úrgangs hefst í vor, samhliða verða breytingar kynntar. Fjórum úrgangsflokkum verður safnað frá heimilum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
6 (22-26). fundur
Farið yfir stöðuna á samræmingu sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu.