Beint í efni

15. (1973). fundur

27.04.2021
Bæjarráð Garðabæjar

15. (1973). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

27.04.2021

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2101335

01

Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosning 2021.

Á fund bæjarráðs mætti Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöðum matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“. Alls bárust 258 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og skráðu 1346 einstaklingar sig inn á hugmyndavefinn. Skráðar voru 547 athugasemdir um innsendar hugmyndir. Matshópurinn leggur til að 23 hugmyndir fari í kosningu. Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins. Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 26. maí til 7. júní nk. Íbúar með skráð lögheimili í Garðabæ sem verða 15 ára á kosningaárinu og eldri geta tekið þá í kosningunni

Málsnúmer 2103182

02

Skólpdælustöð Breiðamýri - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Berg verktökum ehf., kt. 560816-1460 leyfi til að byggja skólpdælustöð í Breiðumýri.

Málsnúmer 2104326

03

Erindi varðandi umsókn um lækkun fasteignaskatts, dags. 20.04.20.

Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2020 að fjárhæð kr. 115.348.

Málsnúmer 1902106

04

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi kynningu á endurskoðaðri tillögu að friðlýsingu og stækkun fólkvangs í Garðahrauni efra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum, dags. 20.04.21.

Tillagan er unnin af samstarfshópi sem skipaður er fulltrúm Umhverfisstofnunar, Garðabæjar, Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa,umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Minjastofnunar Íslands.

Tillagan er lögð fram í samræmi við 39. gr. laga 60/2013 um náttúruvernd og er frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til og með fimmtudeginum 24. júlí 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1902106

05

Bréf Umhverfisstofnunar um friðlýsingu Skerjafjarðar við Álftanes, dags. 19.04.21.

Í bréfinu eru kynnt áform um friðlýsingu Skerjafjarðar við Álftanes sem friðland og er frestur til að skila athugasemdum við áformin til og með 21. maí 2021.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009461

06

Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytis varðandi mögulega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum, dags. 22.09.20.

Gerð er grein fyrir viðræðum fulltrúa sveitarfélaganna Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um sameiginlegt heilbrigðiseftirlit og kynnt drög að sameiginlegri fjárhagsáætlun og drög að samþykktum fyrir nýtt eftirlitsvæði. Niðurstaða samstarfshópsins er að mæla með sameiginlegu heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2104348

07

Fyrirspurn Garðabæjarlistans um innviðagjöld í Urriðaholti.

Málsnúmer 2102335

08

Bréf Endurmenntunarsjóðs grunnskóla um úthlutun styrkja, dags. 20.04.21.

Lögð fram bréf frá Endurmenntunarsjóði grunnskólans um úthlutun styrkja til verkefna á sviði fræðslu- og uppeldismála samtals að fjárhæð kr. 6.200.000.

Um er að ræða eftirfarandi styrki.

Álftanesskóli kr. 480.000

Flataskóli kr. 480.000

Garðaskóli kr. 480.000

Hofsstaðaskóli kr. 480.000

Sjálandsskóli kr. 480.000

Urriðaholtsskóli kr. 480.000

Garðabær - fræðslu- og menningarsvið kr. 1.820.000

Garðabær f.h. SSH kr. 1.500.000

kr. 6.200.000

Málsnúmer 2103140

09

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi styrkbeiðni Nýsköpunarviku, dags. 23.04.21.

Í bréfinu kemur fram að stjórn samtakanna hafnar að veita styrk til Nýsköpunarviku og vísar afgreiðslu málsins til hverrar sveitarstjórnar.

Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.

Málsnúmer 2104378

11

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi samræmingu úrgangsflokkunar, dags. 23.04.21.

Lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2104376

12

Bréf Trés lífsins, varðandi lóð fyrir byggingu bálstofu og höfuðstöðva í Rjúpnadal, dags. 22.04.21.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi og felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna um samning varðandi úthlutun lóðar fyrir starfsemi bálstofu og höfuðstöðva félagsins í Rjúpnadal.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2104366

13

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð, 702. mál, dags. 23.04.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2104332

14

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006, 668. mál, dags. 21.04.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2104341

15

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skráða sambúð fleiri en tveggja aðila, 539. mál, dags. 21.04.21.

Lagt fram.