Betri Garðabær - staða framkvæmda.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (2003). fundur
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við verkefni sem falla undir Betri Garðabæ.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (1980). fundur
Lögð fram fundargerð kjörstjórnar Garðabæjar frá 8. júní 2021 varðandi niðurstöðu talningar í rafrænni íbúakosningu sem stóð yfir dagana 26. maí til og með 7. júní 2021.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi áætlun um framkvæmd verkefna sem hlutu kosningu í rafrænum íbúakosningum - Betri Garðabær.
Heiðmörk stígar 20.0 mkr.
Kort með göngu- og hlaupaleiðum í Garðabæ 5.0 mkr.
Gosbrunnur fyrir glaða krakka 5.0 mkr.
Fjölga bekkjum og áningastöðum í Garðabæ 10.0 mkr.
Aðstaða fyrir sjósport í Sjálandi 20.0 mkr.
Stjörnuskoðunarsvæði í upplandi Garðabæjar 6.0 mkr.
Infrarauður saunaklefi í Ásgarðslaug 20.0 mkr.
Ærslabelgur í Sjáland 3.5 mkr.
Skólalóð Sjálandsskóla - aparóla 3.5 mkr.
Skólalóð Sjálandsskóla - lítil trampólín 3.5 mkr.
Ærslabelgur við Kauptún 3.5 mkr.
Alls 100.0 mkr.
Framkvæmdaáætlun verður birt á vef Garðabæjar og uppfærð á þriggja mánaða fresti og einnig verða framkvæmdirnar sýnilegar á kortavef bæjarins, undir „verklegar framkvæmdir“;. Reglulega verða birtar fréttir á vef Garðabæjar og Facebook síðu bæjarins um framgang verkefnanna og þegar hverju verkefni er lokið.
Bæjarráð Garðabæjar
04
15. (1973). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Sólveig Helga Jóhannsdóttir, skipulagsfræðingur á tækni- og umhverfissviði og gerði grein fyrir niðurstöðum matshóps varðandi verkefni sem lagt er til að fari í rafræna íbúakosningu undir heitinu „Betri Garðabær“. Alls bárust 258 hugmyndir í hugmyndasamkeppni og skráðu 1346 einstaklingar sig inn á hugmyndavefinn. Skráðar voru 547 athugasemdir um innsendar hugmyndir. Matshópurinn leggur til að 23 hugmyndir fari í kosningu. Bæjarráð samþykkir tillögur matshópsins. Rafræn íbúakosning mun fara fram dagana 26. maí til 7. júní nk. Íbúar með skráð lögheimili í Garðabæ sem verða 15 ára á kosningaárinu og eldri geta tekið þá í kosningunni
Bæjarráð Garðabæjar
05
10. (1968). fundur
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir að alls hafa borist um 250 hugmyndir í hugmyndasöfnun að Betri Garðabæ. Matshópur frá tækni- og umhverfissviði er að fara yfir hugmyndirnar og mun gera tillögu til bæjarráðs um kjörseðil vegna rafrænna kosninga sem fyrirhugaðar eru frá 26. maí til 7. júní.
Lagðar fram uppfærðar reglur um rafrænar kosningar 2021.
Bæjarráð Garðabæjar
06
4. (1962). fundur
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri fór yfir verkefnalýsingu og gerði grein fyrir undirbúningi að hugmyndasöfnum verkefnisins Betri Garðabær sem mun fara fram síðari hluta febrúar og fram í byrjun mars. Íbúakosning er fyrirhuguð í maí. Gert er ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 100 mkr til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2021 og 2022.