45. (2003). fundur
45. (2003). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
23.11.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um álagningu fasteignagjalda og tillögu um að hækka gjaldskrár almennt um 2,5% í samræmi viðmið lífskjarasamningana 2019-2022.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri fór yfir tillögur að breytingum milli umræðna og áhrif þeirra á efnahag, sjóðstreymi og lykiltölur. Um óverulegar breytingar er að ræða.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir, voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
02
Tillaga Garðabæjarlistans um átak til að fjölga félagslegu leiguhúsnæði í Garðabæ.
Lögð fram tillaga Garðabæjarlistans sem bæjarstjórn samþykkti að vísa til umfjöllunar bæjarráðs.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráðast í átak til að fjölga félagslegum leiguíbúðum með því að auka fjárveitingu til kaupa á íbúðum í 450 milljónir fyrir árið 2022, í 350 milljónir fyrir árið 2023 og 350 milljónir fyrir árið 2024. Einnig samþykkir bæjarstjórn að leita leiða til að fjölga lóðum fyrir óhagnaðardrifin leigufélög í Garðabæ.“
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun.
Fylgiskjöl
03
Staða framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús. Lögð fram stöðuskýrsla, dags. í nóvember 2021. Fram kom að verið er byrja að leggja gervigrasteppi á gólf hússins.
Bæjarráð stefnir á að fara í skoðunarferð í húsið eftir fund bæjarráðs 6. desember nk.
Fylgiskjöl
04
Betri Garðabær - staða framkvæmda.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við verkefni sem falla undir Betri Garðabæ.
Fylgiskjöl
05
Austurhraun 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Austurhrauni ehf., kt. 550206-0990, leyfi fyrir viðbyggingu fyrir loftræstisamstæðu við atvinnuhúsnæði að Austurhrauni 7.
06
Austurhraun 9 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Marel hf., kt. 620483-0369, leyfi til að endurnýja og breyta þaki á tengibyggingu atvinnuhúsnæðis að Austurhrauni 9.
07
Kinnargata 92 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 20 íbúðum að Kinnargötu 92.
08
Maríugata 20 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brimhyrnu ehf., kt. 640119-1600, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 20.
09
Maríugata 22 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brimhyrnu ehf., kt. 640119-1600, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 22.
10
Maríugata 24 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brimhyrnu ehf., kt. 640119-1600, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 24.
11
Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ varðandi lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.
Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.
12
Bréf Kópavogsbæjar varðandi deiliskipulag Smárahvammsvegar, dags. 04.11.21.
Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.
13
Bréf Garðakórsins varðandi styrk, dags. 27.10.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
14
Bréf Þjóðskjalasafns Íslands varðandi skýrslu um skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga, dags. 16.11.21.
Með bréfinu fylgdi skýrsla um niðurstöður könnunar á skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga sem eru afhendingarskyld til Þjóðskjalasafns Íslands.
Fylgiskjöl
15
Erindi Soroptimistaklúbbs Hafnarfjarðar og Garðabæjar varðandi átak á heimsvísu undir heitinu "Roðagyllum heiminn", dags. 15.11.21.
Í erindinu er hvatning um að lýsa upp turninn á bæjarskrifstofunum með appelsínugulum ljósum og taka þannig þátt í átaki á heimsvísu „Orange the World“ en markmiðið átaksins er að vekja athygli á ofbeldi gegn konum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
16
Bréf Hestamannafélagsins Spretts (afrit) varðandi kynningu Markaðsstofu Kópavogs á gönguleiðum, dags. 11.11.21.
Í bréfinu er vakin athygli á að Markaðsstofa Kópavogs hefur gefið út gönguleiðakort þar sem sérmerktir reiðstígar hafa verið tilgreindir sem gönguleiðir.
Fylgiskjöl
17
Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar
Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.