Beint í efni

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar

Málsnúmer 2011383

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

11. fundur

Á fundi bæjarstjórnar 15.12.2022 voru samþykktar breytingar á reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Breytingarnar fólu í sér samræmingu við breytingar á barnaverndarlögum þar sem fastanefndum sveitarfélaga er ekki lengur falið úrskurðarvald í barnaverndarmálum heldur umdæmisráði barnaverndar.
Lagt fram til kynningar fjölskylduráðs.

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 lagðar fram til kynningar. Reglurnar voru samþykktar af bæjarstjórn 15.12.2022.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (914). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða endurskoðun reglna um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannskostnaðar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

45. (2052). fundur



Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði gerði grein fyrir endurskoðun á reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar.

Bæjarráð vísar endurskoðun á reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

17. (895). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um veitingu styrks til greiðslu lögmannskostnaðar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

45. (2003). fundur

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

10. fundur

Lagt er til samþykktar mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Eldri reglur um málefnið eru frá 2003. Sigríður Logadóttir, lögfræðingur á stjórnsýslusviði Garðabæjar, setti drögin saman. Reglurnar eru settar með hliðsjón af 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga þar sem segir að aðilar barnaverndarmáls skuli eiga þess kost að tjá sig munnlega eða skriflega, þ.m.t. með aðstoð lögmanns, um efni máls og annað sem lýtur að málsmeðferðinni áður en barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð. Skv. drögunum er veittur fjárstyrkur vegna fyrirtöku á fundi fjölskylduráðs þegar til greina kemur að beita þvingunarúrræðum skv. barnaverndarlögum. Jafnframt sé veittur styrkum til greiðslu lögmannskostnaðar fyrir úskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2.2 mgr. 47. gr. barnaverndarlaga. Við ákvörðun um fjárstyrk verði tekið tillit til efnahags umsækjanda og fjárhæð styrksins skuli metin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins.
Drögin fóru fyrir fjölskylduráð 16.12.2020 en fóru aftur til frekari skoðunar hjá lögfræðingum Garðabæjar í kjölfar þess. Drögin eru lögð fram að nýju án efnislegra breytinga.

Tekið er fyrir mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar, sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Drögin fóru fyrir fjölskylduráð 16.12.2020 en fóru aftur til frekari skoðunar hjá lögfræðingum Garðabæjar í kjölfar þess. Drögin eru lögð fram að nýju án efnislegra breytinga. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir við þau. Drögunum er vísað til samþykktar bæjarráðs Garðabæjar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

12. fundur

Lagt er fyrir mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Eldri reglur um málefnið eru frá 2003. Sigríður Logadóttir, lögfræðingur á stjórnsýslusviði Garðabæjar, setti drögin saman. Reglurnar eru settar með hliðsjón af 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga þar sem segir að aðilar barnaverndarmáls skuli eiga þess kost að tjá sig munnlega eða skriflega, þ.m.t. með aðstoð lögmanns, um efni máls og annað sem lýtur að málsmeðferðinni áður en barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð. Skv. drögunum er veittur fjárstyrkur vegna fyrirtöku á fundi fjölskylduráðs þegar til greina kemur að beita þvingunarúrræðum skv. barnaverndarlögum. Jafnframt sé veittur styrkum til greiðslu lögmannskostnaðar fyrir úskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2.2 mgr. 47. gr. barnaverndarlaga. Við ákvörðun um fjárstyrk verði tekið tillit til efnahags umsækjanda og fjárhæð styrksins skuli metin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins.

Tekið er fyrir mál nr. 2011383. Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fjölskylduráð felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að koma athugasemdum við reglurnar til lögfræðinga stjórnsýslusviðs.