Beint í efni

12. fundur

16.12.2020
Fjölskylduráð Garðabæjar

12. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

16.12.2020

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2012178

01

Málefni fatlaðs fólks: yfirlit og staða verkefna

Mál lagt fyrir fjölskylduráð til upplýsinga um stöðu málaflokksins.

Tekið er fyrir mál nr. 2012178, yfirlit og staða verkefna í málaflokki fatlaðs fólks. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, gerir grein fyrir núverandi stöðu málaflokksins, helstu verkefnum sem framundan eru og áskorunum. M.a. rætt um kostnað, tekjur, áskoranir og tækifæri í þjónustuleiðum sem og mat á gæðum þjónustu. Fjölskylduráð þakkar umsjónarþroskaþjálfa fyrir greinargóða umfjöllun.

Málsnúmer 2011219

02

Fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Svar starfsmanns fjölskyldusviðs við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir lagt fyrir fjölskylduráð til kynningar.

Tekið er fyrir mál 2011219. Svar umsjónarþroskaþjálfa Garðabæjar við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er lagt fyrir fjölskylduráð til kynningar. Á fundinum kom fram fyrirspurn um hvort verið væri að veita þá þjónustu sem þjónustuþegar ættu rétt á, miðað við fyrirliggjandi mat og varpaði umsjónarþroskaþjálfi ljósi á þá stöðu.

Málsnúmer 2009547

03

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu

Greinargerð varðandi úttekt á stuðningsfjölskyldu er lögð fyrir Fjölskylduráð til afgreiðslu.

Tekið er fyrir mál nr. 2009547, beiðni Keðjunnar um úttekt vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Sólveig Björg Arnarsdóttir, félagsráðgjafi, situr fundinn undir þessum lið. Fyrir liggur greinargerð ráðgjafa í barnavernd. Fjölskylduráð Garðabæjar mælir með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis til umsækjenda. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundarins.

Málsnúmer 2011383

04

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar

Lagt er fyrir mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Eldri reglur um málefnið eru frá 2003. Sigríður Logadóttir, lögfræðingur á stjórnsýslusviði Garðabæjar, setti drögin saman. Reglurnar eru settar með hliðsjón af 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga þar sem segir að aðilar barnaverndarmáls skuli eiga þess kost að tjá sig munnlega eða skriflega, þ.m.t. með aðstoð lögmanns, um efni máls og annað sem lýtur að málsmeðferðinni áður en barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð. Skv. drögunum er veittur fjárstyrkur vegna fyrirtöku á fundi fjölskylduráðs þegar til greina kemur að beita þvingunarúrræðum skv. barnaverndarlögum. Jafnframt sé veittur styrkum til greiðslu lögmannskostnaðar fyrir úskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2.2 mgr. 47. gr. barnaverndarlaga. Við ákvörðun um fjárstyrk verði tekið tillit til efnahags umsækjanda og fjárhæð styrksins skuli metin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins.

Tekið er fyrir mál nr. 2011383. Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Fjölskylduráð felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að koma athugasemdum við reglurnar til lögfræðinga stjórnsýslusviðs.

Málsnúmer 1903268

05

Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-

Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Tekið er fyrir mál nr. 1903268, tölulegar upplýsingar er varða velferð barna og fjölskyldna. Fjallað var um málið og helstu upplýsingar.

Fjallað um samantekt Snædísar Björnsdóttur vegna 19. gr. barnaverndarlaga er varðar afléttingu nafnleyndar.