Beint í efni

Fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Málsnúmer 2011219

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

1. fundur

Tekið er fyrir mál 2011219, svar umsjónarþroskaþjálfa Garðabæjar við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Lagt fyrir samráðshóp til kynningar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

12. fundur

Svar starfsmanns fjölskyldusviðs við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir lagt fyrir fjölskylduráð til kynningar.

Tekið er fyrir mál 2011219. Svar umsjónarþroskaþjálfa Garðabæjar við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er lagt fyrir fjölskylduráð til kynningar. Á fundinum kom fram fyrirspurn um hvort verið væri að veita þá þjónustu sem þjónustuþegar ættu rétt á, miðað við fyrirliggjandi mat og varpaði umsjónarþroskaþjálfi ljósi á þá stöðu.

Bæjarráð Garðabæjar

03

47. (1955). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. (1953). fundur

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn.

„Hversu margir af þeim einstaklingum sem Garðabær veitir þjónustu á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir hafa fengið einstaklingsbundna þjónustuáætlun?
Í hve mörgum tilfellum er þjónustuáætlunin staðfest og undirrituð af fjölskyldusviði (miðað við þann 08/11/2020)?
Í hve mörgum tilfellum er þjónustuáætlunin staðfest og undirrituð af fulltrúum frá þjónustukerfum heilbrigðis- og menntamála (miðað við þann 08/11/2020)? „

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.