1. fundur
1. fundur
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
11.02.2021
Kl. 10:00 - 11:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
- Elín Hoe Hinriksdóttir - aðalmaður
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsmálastjóri
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður
Ritari
- Pála Marie Einarsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2101432
01
Kynning Erlendar Pálssonar á nýju fyrirkomulagi á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk
Kynning Erlendar Pálssonar á nýju fyrirkomulagi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk
Mál 2101432, kynning Erlendar Pálssonar á nýju fyrirkomulagi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Áhersla lögð á betra aðgengi, rafrænar umsóknir og nýtingu þjónustugáttar. Eftir útboð var samningur gerður við Hópbíla. Gallup mun framkvæma þjónustukönnun í kjölfar breytinganna og verða þær niðurstöður kynntar sérstaklega. Samráðshópurinn lýsir ánægju sinni með þessar breytingar og telur þær vera til hagsbóta fyrir notendur.
Málsnúmer 2011219
02
Fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Tekið er fyrir mál 2011219, svar umsjónarþroskaþjálfa Garðabæjar við fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Lagt fyrir samráðshóp til kynningar.
Málsnúmer 2009056
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Tekið er fyrir mál nr. 2009056, árleg íbúakönnun Gallup er lögð fram til kynningar. 422 einstaklingar svöruðu könnuninni. Það sem meðal annars snýr að þjónustu við fatlað fólk er spurning um hversu ánægt eða óánægt fólk er með þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu. Þar skorar Garðabær 3,5 bæði árið 2019 og 2020, það er því ekki um breytingu að ræða milli ára. Garðabær er yfir landsmeðaltali sem er 3,4. Umræða skapaðist um vöntun á húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og stefnu í þeim málum. Kröfurnar eru að aukast og umsóknir um sérstök húsnæðisúrræði að berast fyrr en áður, eða strax við 18 ára aldur. Það er ekki biðlisti eftir annari þjónustu í málaflokknum en húsnæðisúrræðum hjá Garðabæ.
Málsnúmer 2102035
04
Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Mál númer 2102035 lagt fram til kynningar, tillaga um að fela fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar að skoða heildstæða nýtingu húsnæðis á Garðatorgi 1, áframhaldandi uppbyggingu Hönnunarsafn Íslands og að skoðað verði að koma á fót ungmennahúsi sem myndi m.a. myndi sinna frístundastarfi fyrir fötluð börn og ungmenni.
Málsnúmer 2102038
05
Heimili fyrir börn
Starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12.
Mál nr: 2102038 lagt fram til kynningar, Hildigunnur Árnadóttir, yfirfélagsráðgjafi kynnti undirbúning að starfsemi búsetuþjónustu fyrir fötluð börn að Sigurhæð 12. Samráðshópurinn fagnar þessu gæfuspori sem Garðabær er að taka í þágu fatlaðra barna í þörf fyrir búsetu utan heimilis.