Beint í efni

10. fundur

15.09.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

10. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

15.09.2021

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2105145

01

Ósk um endurupptöku á ákvörðun um lok á leigusamningi í félagslegri leiguíbúð

Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 2105145, beiðni um endurskoðun ákvörðunar um lok leigusamnings í ljósi nýrra upplýsinga í málinu. Málinu var frestað á fundi fjölskylduráðs 18.8.2021.

Tekið er fyrir mál nr. 2105145, nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2109047

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Mál nr. 2109047 lagt fram, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2109047, umsókn um tryggingu húsaleigu. Samþykkt er að verða við erindinu. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2108515

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Mál nr. 2108515 lagt fyrir, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108515, umsókn um tryggingu húsaleigu. Samþykkt er að verða við erindinu. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2109257

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð - námsstyrkur haust 2021

Mál nr. 2109257 lagt fyrir, umsókn um námsstyrk á haustönn 2021.

Tekið er fyrir mál nr. 2109257, umsókn um námsstyrk. Samþykkt er að verða við erindinu. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2105693

05

Umsókn um fjárhagsaðstoð námsstyrkur haust 2021

Mál nr. 2105693 lagt fyrir, umsókn um námsstyrk á haustönn 2021.

Tekið er fyrir mál nr. 2105693, umsókn um námsstyrk. Samþykkt er að verða við erindinu. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2107140

06

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Lagt er fyrir mál nr. 2107140, áfrýjun vegna synjunar umsóknar um fjárhagsaðstoð.

Tekið er fyrir mál nr. 2107140, áfrýjun á synjun um fjárhagsaðstoð. Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar fjölskylduráðs.

Málsnúmer 2011383

07

Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannssaðstoðar

Lagt er til samþykktar mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Eldri reglur um málefnið eru frá 2003. Sigríður Logadóttir, lögfræðingur á stjórnsýslusviði Garðabæjar, setti drögin saman. Reglurnar eru settar með hliðsjón af 1. mgr. 47. gr. barnaverndarlaga þar sem segir að aðilar barnaverndarmáls skuli eiga þess kost að tjá sig munnlega eða skriflega, þ.m.t. með aðstoð lögmanns, um efni máls og annað sem lýtur að málsmeðferðinni áður en barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð. Skv. drögunum er veittur fjárstyrkur vegna fyrirtöku á fundi fjölskylduráðs þegar til greina kemur að beita þvingunarúrræðum skv. barnaverndarlögum. Jafnframt sé veittur styrkum til greiðslu lögmannskostnaðar fyrir úskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2.2 mgr. 47. gr. barnaverndarlaga. Við ákvörðun um fjárstyrk verði tekið tillit til efnahags umsækjanda og fjárhæð styrksins skuli metin með hliðsjón af eðli og umfangi málsins.

Drögin fóru fyrir fjölskylduráð 16.12.2020 en fóru aftur til frekari skoðunar hjá lögfræðingum Garðabæjar í kjölfar þess. Drögin eru lögð fram að nýju án efnislegra breytinga.

Tekið er fyrir mál nr. 2011383, drög að endurnýjuðum reglum Garðabæjar um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar, sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Drögin fóru fyrir fjölskylduráð 16.12.2020 en fóru aftur til frekari skoðunar hjá lögfræðingum Garðabæjar í kjölfar þess. Drögin eru lögð fram að nýju án efnislegra breytinga. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir við þau. Drögunum er vísað til samþykktar bæjarráðs Garðabæjar.

Málsnúmer 2012114

08

Sískráning í barnavernd

Samtöluskýrsla barnaverndar í Garðabæ lögð fram til kynningar.

Mál nr. 2012114 lagt fram til kynningar, árleg samtöluskýrsla sem skilað er til Barnaverndarstofu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2106128

09

Aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti.

Lagt er fram til kynningar og umræðu aðgerðaráætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi.

Tekið er fyrir mál nr. 2106128, lagt fram til kynningar.

Málsnúmer 2106343

10

Húsnæðismál

Lagt er fram til kynningar og umfjöllunar bréf frá Félagi eldri borgara í Garðabæ, þar sem fram koma áherslur félagsins fyrir komandi starf á næsta hausti.

Tekið er fyrir mál nr. 2106343, bréf frá Félagi eldri borgara í Garðabæ. Fjölskylduráð leggur áherslu á gott samstarf og samvinnu við félagið og vinnur áfram að því að koma í farveg þeim áherslumálum sem fram koma í meðfylgjandi bréfi.

Málsnúmer 1911163

11

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Unnið er að endurskoðun á Lýðræðisstefnu Garðabæjar. Lögð eru fram til kynningar skjöl er varða þá endurskoðun ásamt drögum að tímalínu verkefnis.

Fjölskylduráð samþykkir að fela fulltrúum fjölskylduráðs, Almari Guðmundssyni og Hörpu Þorsteinsdóttur, að ganga frá endanlegum drögum að stefnunni til kynningar í nefndum.