Beint í efni

Húsnæðismál

Málsnúmer 2106343

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

10. fundur

Lagt er fram til kynningar og umfjöllunar bréf frá Félagi eldri borgara í Garðabæ, þar sem fram koma áherslur félagsins fyrir komandi starf á næsta hausti.

Tekið er fyrir mál nr. 2106343, bréf frá Félagi eldri borgara í Garðabæ. Fjölskylduráð leggur áherslu á gott samstarf og samvinnu við félagið og vinnur áfram að því að koma í farveg þeim áherslumálum sem fram koma í meðfylgjandi bréfi.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

33. fundur

Rædd ábending frá FEBG varðandi húsnæðismál Jónshúss. Málið er í skoðun hjá bænum.
Sagt var frá samningi sem FEBG hefur gert við Janus heilsurækt þar sem 160 manns byrja nú í haust.

Öldungaráð

03

3. fundur

Bréf frá Félagi eldri borgara í Garðabæ lagt fram til kynningar og umfjöllunar. Um er að ræða erindi sem snúa að;
1. Heilsueflingu og bættri líðan
2. Húsnæðismálum - Jónshús
3. Skertri þjónustu í Jónshúsi
4. Samstarf og samvinnu

Mál nr. 2106343 tekið til umfjöllunar í Öldungaráði, bréf frá FEBG. Fyrir liggur að efni og atriði bréfsins hafa verið tekin til skoðunar hjá Garðabæ. Kominn er samningur við FEBG sem snýr að heilsueflingu og bættri líðan eldri borgara. Búið er að koma til móts við beiðni um aukna þjónustu í Jónshúsi. Öldungaráð telur þessar aðgerðir bæjarins vera til fyrirmyndar og mikilvægar í þágu þjónustu til eldri borgara. Lagt er til að farið verið í þarfagreiningu varðandi húsnæðismál í samvinnu við félögin í bænum.


Bæjarráð Garðabæjar

04

23. (1981). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Sara Dögg Svanhildardóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:

„Garðabæjarlistinn fagnar því að Garðabær styðji við félag eldri borgara með auknu fjármagni og geri félaginu þannig kleift að gera samning við Janus heilsueflingu að veruleika og um leið marg framlagða tillögu okkar Garðabæjarlistans um að innleiða Janus heilsueflingu verkefni sem tekur sérstaklega utan um lýðheilsu eldri borgara með faglegum og markvissum hætti.“

Fylgiskjöl