Kinnargata 92 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (2123). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu bygginarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum uppdráttum, innveggjum breytt úr steypu í létta veggi, útveggir þykkna vegna breytinga á klæðningu, á Kinnargötu 92.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
4. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Kinnargata 92 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar dags.10.apríl 2024.
Heildarbyggingarmagn hússins eru 3.519 m2 en hámarks byggingarmagn er 3.410 m2 samkvæmt deiliskipulagi, þ.e. 109 fermetrar eru umfram heimilað byggingarmagn. Umfram rými er að mestu neðanjarðar og ákveðið var að breyta klæðningu og einangrun sem jók byggingarmagnið.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umfram byggingarmagn varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarráð Garðabæjar
05
45. (2003). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 20 íbúðum að Kinnargötu 92.