4. (1962). fundur
4. (1962). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
02.02.2021
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 1808087
01
Framkvæmdir við fjölnota íþróttahús - áfangaskýrsla.
Helgi Már Halldórsson, arkitekt fjölnota íþróttahúss, kom á fund bæjarráðs og kynnti þrívíddar teikningar af húsinu bæði að utan að innan og sýndi nánar einstök rými innanhúss.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri framkvæmda og umhverfis fór yfir stöðu verksamnings, verkstöðu og framvindu verksins næstu mánuði.
Bæjarfulltrúarnir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1,2 og 3
Málsnúmer 2005203
02
Staða framkvæmda við Hafnarfjarðarveg.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg. Uppsetning ljósa á gatnamótum Vífilsstaðavegar er lokið og verið að stilla ljósin með tilliti til umferðarflæðis og verða allar akreinar komnar í notkun um leið og veður leyfir. Hafinn er undirbúningur vegna framkvæmda við undirgöng við Hraunsholtslæk og verður framhjáhlaup í átt að Ásgarði á meðan undirgöngin verða í framkvæmd. Farið verður í framkvæmdir við gatnamót Lyngáss og Lækjarfitjar í haust og frágang við hljóðveggi. Verklok eru áætluð í október 2021.
Málsnúmer 2006130
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Lántaka.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000, verðtryggt með 1,48% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fyrir liggja drög að lánssamningi.
Málsnúmer 2101522
04
Minnisblað Herdísar Storgaard varðandi öryggi barna á leiksvæðum Garðabæjar.
Lagt fram minnisblað Herdísar Storgaard varðandi öryggi barna á leiksvæðum. Í minniblaðinu er er lýst ástandsskoðun á kastala á leiksvæði á opnu svæði við Lundaból.
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að gera lagfæringar vegna frávika og láta framkvæma sambærilega úttekt á öðrum leiksvæðum bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101335
05
Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosning 2021.
Hulda Hauksdóttir, upplýsingastjóri fór yfir verkefnalýsingu og gerði grein fyrir undirbúningi að hugmyndasöfnum verkefnisins Betri Garðabær sem mun fara fram síðari hluta febrúar og fram í byrjun mars. Íbúakosning er fyrirhuguð í maí. Gert er ráð fyrir fjárveitingu að fjárhæð 100 mkr til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2021 og 2022.
Málsnúmer 2101013
06
Garðatorg 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi núverandi húsnæðis að Garðatorgi 4C. (F2351679)
Málsnúmer 2005183
07
Hákotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Pétri Daníelssyni, kt. 280471-5859, leyfi til að byggja við núverandi hús að Hákotsvör 8.
Málsnúmer 2011212
08
Maríugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Íbúðum ehf., kt. 600115-0220, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 34 íbúðum að Maríugötu 13-15.
Málsnúmer 2011215
09
Umsögn varðandi tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi umsögn Garðabæjar vegna tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Lyklafellslínu og Ísalslínu 1.
„Garðabær fagnar því að haldið sé áfram með undirbúning breytinga á flutningskerfi raforku á höfuðborgarsvæðinu sem hafa það að meginmarkmiði að flytja það fjær byggð. Megin ávinningur sveitarfélagsins verður niðurrif á háspennulínum á útivistarsvæðum í upplandi bæjarins sem eru mikilvægur hluti þeirra búsetugæða sem Garðabær býr yfir. Í því sambandi má minna á stefnu Garðabæjar sem er sett fram í gildandi aðalskipulagi að Hnoðraholtslína verði lögð í jörð og verða þá engar loftlínur sýnilegar á útvistarsvæðum að undaskildum loftlínum ofan Húsfells og Helgafells.
Garðabær leggur til að í umhverfismati verði valkostahugmynd Lyklafellslínu sem kallast þéttbýlisleið A bætt við sem valkosti í umhverfismatinu ásamt leiðum L (loftlína með Búrfellslínu) og J (jarðstrengur með Bláfjallavegi). Er þá horft til þátta eins og vatnsverndar og hættu af náttúruhamförum, sér í lagi eldsumbrotum í Brennisteinsfjalla-og Krísuvíkurkerfi. Vissulega yrði þá flutningskerfið nær byggð ef sú leið yrði fyrir valinu en leiðin samkvæmt hugmyndinni fylgir Flóttamannavegi (Elliðavatnsvegi) að mestum hluta og er það sú leið sem líkleg er að Hnoðraholtslína myndi fylgja þegar hún verður lögð í jörð.
Ennfremur er bent á að Garðabær vinnur nú að friðlýsingu Urriðakotshrauns sem fólkvangs í samvinnu við landeigendur og Umhverfisstofnun. Æskilegt væri að þess verði getið í matsáætlun og þeim matsskýrslum sem nú verða unnar. Sú staða hefur áhrif á vinsun valkostahugmynda um loftlínur eða jarðstreng þvert yfir hraunið.“
Málsnúmer 1804081
10
Bréf Skátafélagsins Vífils um viðbótarstuðning vegna lokaframkvæmda við útilífsmiðstöðina í Heiðmörk, dags. 28.01.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1804081
11
Bréf Skátafélagsins Vífils varðandi stuðning við innréttingar og innbú í útilífsmiðstöðina í Heiðmörk, dags. 28.01.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2010511
12
Bréf Garðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2021, dags. 29.10.20.
Bæjarstjórn samþykkir að veita Garðasókn styrk að fjárhæð kr. 1.090.381 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.
Málsnúmer 2101420
13
Bréf Bessastaðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2021, dags. 21.01.21.
Bæjarstjórn samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 298.925 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.
Málsnúmer 2101428
14
Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu um skýrslu starfshóps varðandi tillögur að heilsueflingu eldri borgara, dags. 25.01.21.
Lögð fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101446
15
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi boðun XXXVI landsþings, dags. 26.01.21.
Málsnúmer 2012193
16
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, dags. 25.01.21.
Ingvar Arnarson, fjallaði um umsögnina og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Ég sem bæjarfulltrúi geri alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við gerð þessarar umsagnar. Umsögn þessi var send út áður en að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um hana. Þegar þessi umsögn var síðan loksins lögð fyrir stjórn Sambandsins gerðu fimm af níu stjórnarmönnum er sátu fundinn athugasemdir við umsögnina, samt sem áður er hún send út óbreytt og án bókana og athugasemda sem gerðar voru á stjórnarfundi. Þessi vinnubrögð eru með öllu óboðleg.“
Bæjarstjóri fjallaði um umsögnina og framlagða bókun. Gerði hann grein fyrir að hann hafi ekki setið fund stjórnar Sambandsins þar sem umsögnin var tekin fyrir. Bæjarstjóri upplýsti að hann muni kynna framlagða bókun í stjórn Sambandsins.
Almar Guðmundsson, fjallaði um umsögnina og framlagða bókun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101414
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál., dags. 22.01.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101416
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða, 419. mál., dags. 22.01.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101448
19
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 370. mál., dags. 26.01.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101518
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál., dags. 28.01.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101517
21
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál., dags. 28.01.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101512
22
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um kostnað vegna auglýsinga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 2011450
23
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um vöru- og þjónustukaup 2020.
Lagður fram listi yfir kaup á vöru og þjónustu frá stærstu birgjum á árinu 2020.
Málsnúmer 2101523
24
Viðauki við samning um notkun beitarhólfs við Krísuvíkurbjarg.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við samning um notkun á beitarhólfi við Krísuvíkurbjarg, dags. 9. mars 2018.
Málsnúmer 2006465
25
Dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli Elbu ehf. gegn Garðabæ, mál nr. E-16652020.
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli Elbu ehf. gegn Garðabæ. Í dómsorði kemur fram að Garðabær er sýkn af kröfum stefnanda í málinu.