Beint í efni

Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, dags. 25.01.21.

Málsnúmer 2012193

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. (1962). fundur

Ingvar Arnarson, fjallaði um umsögnina og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Ég sem bæjarfulltrúi geri alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð við gerð þessarar umsagnar. Umsögn þessi var send út áður en að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði um hana. Þegar þessi umsögn var síðan loksins lögð fyrir stjórn Sambandsins gerðu fimm af níu stjórnarmönnum er sátu fundinn athugasemdir við umsögnina, samt sem áður er hún send út óbreytt og án bókana og athugasemda sem gerðar voru á stjórnarfundi. Þessi vinnubrögð eru með öllu óboðleg.“

Bæjarstjóri fjallaði um umsögnina og framlagða bókun. Gerði hann grein fyrir að hann hafi ekki setið fund stjórnar Sambandsins þar sem umsögnin var tekin fyrir. Bæjarstjóri upplýsti að hann muni kynna framlagða bókun í stjórn Sambandsins.

Almar Guðmundsson, fjallaði um umsögnina og framlagða bókun.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

50. (1958). fundur

Lagt fram.