Staða framkvæmda við Hafnarfjarðarveg.
Málsnúmer 2005203
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (1962). fundur
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Hafnarfjarðarveg. Uppsetning ljósa á gatnamótum Vífilsstaðavegar er lokið og verið að stilla ljósin með tilliti til umferðarflæðis og verða allar akreinar komnar í notkun um leið og veður leyfir. Hafinn er undirbúningur vegna framkvæmda við undirgöng við Hraunsholtslæk og verður framhjáhlaup í átt að Ásgarði á meðan undirgöngin verða í framkvæmd. Farið verður í framkvæmdir við gatnamót Lyngáss og Lækjarfitjar í haust og frágang við hljóðveggi. Verklok eru áætluð í október 2021.