Hákotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. (1962). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Pétri Daníelssyni, kt. 280471-5859, leyfi til að byggja við núverandi hús að Hákotsvör 8.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
10. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu við húsið Hákotsvör 8 að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 1.mgr.44.gr.gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt.Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
6. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn af breytingum á íbúðarhúsinu að Hákotsvör 8. Ekkert deiliskipuag er í gildi fyrir Hákotsvör.
Breytingartillaga gerir ráð fyrir viðbyggingu sem nær rúma 7 metra frá húsvegg til norðurs.
Grenndarkynning fór fram árið 2017 en þar var tekið fram að viðbygging væri í flútti við norðurvegg húss númer 10.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar að nýju sem byggingarleyfi í byggð án deiliskipulags sbr. 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Hákotsvarar 5,6,7,10 og 11. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.