7. fundur
7. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
09.07.2020
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - varamaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Sólveig H. Jóhannsdóttir
Dagskrá
01
Búsetukjarni Bergás 3, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir hverfismiðstöð við enda Bergáss breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga.
Tillagan var kynnt á íbúafundi þann 23. júní sl.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Þar koma fram mótmæli við tillögunni þar sem fram kemur skýr vilji íbúa til þess að svæðið verði óbyggt í framtíðinni. M.a. er vísað til þess að þetta sé vinsælt leiksvæði barna í hverfinu.
Í ljósi viðbragða sem koma fram í ábendingum og á íbúafundi leggur skipulagsnefnd til að lóð verði felld út á þessum stað og svæðið skilgreint sem opið svæði. Vísað til tækni- og umhverfissviðs til nánari skoðunar.
Baldur Ó. Svavarsson bókaði eftirfarandi: Undiritaður benti þegar í upphafskynningu þess máls, á fundi skipulagsnefndar í vetur, hversu óheppileg þessi staðsetning búsetukjarna við Bergás og Brekkuás er. Að vísu koma þær athugsemdir ekki fram í fundagerðum enda þær ekki ítarlegar, nema að viðkomandi athugasemd sé bókuð. Því er það að að fulltrúi lýðræðisflokkanna í skipulagsnefnd bókar eftirfarandi:
Það er jákvætt að bæjaryfirvöld hyggi á gerð fleiri búsetukjarna í bæjarfélaginu, enda löngu tímabært. Það verður hins vegar að teljast óheppilegt að meirihlutinn skuli ekki hafa mótað skýra stefnu hvað þessa uppbyggingu áhrærir, né betri valkosti hvað staðsetningu varðar.
Við uppbyggingu og staðsetningu búsetukjarna eiga þarfir og réttindi notenda að vera í forgangi, svo sem m.a. tækifæri til að velja sér búsetustað til jafns við aðra. Skýrt er kveðið á um þessi réttindi í alþjóðlegum samningum og í stefnuskrá Landsamtaka þorskahjálpar, enda augljóst.
Verði af þessari fyrirætlan þá verða þrír kjarnar saman á svæði sem er hefur um 500 m radíus. Það eru um 850 m milli búsetukjarna Unnargrundar og ætlaðrar lóðar við Bergás og einungis um 250 m milli ætlaðra lóða við Bergáss og Brekkuáss. Hinir völdu kostir eru þröngir og skerða auk þess rétt þeirra sem þegar búa við þessar götur, sérstaklega á þetta við Bergás.
Benda má á marga aðra kosti um góða staðsetningu svo sem í Urriðaholti sem enn er í uppbyggingu og fjölmargir möguleikar auk þess sem kjarni af þessu tagi fellur vel að þeirra markmiðum og fjölþætt samfélag þar að sögn. Þá er gríðarlega stórt ósnert svæði efst á Arnarnesi þar sem áður var fyrirhugað að byggja. En þá erum við reyndar komin í mjög „viðkvæmann“ bæjarhluta hvað uppbygginu og breytingar varðar, sé horft til fyrri ákvarðana meirihlutans í gengum tíðina.
Hugsum lengra og skipuleggjum betur. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.
02
Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Tillagan var kynnt á íbúafundi þann 23.júní sl.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Þar koma fram mótmæli við tillögunni. Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og fjölskyldusviði.
Baldur Ó. Svavarsson bókaði eftirfarandi: Undiritaður benti þegar í upphafskynningu þess máls, á fundi skipulagsnefndar í vetur, hversu óheppileg þessi staðsetning búsetukjarna við Bergás og Brekkuás er. Að vísu koma þær athugsemdir ekki fram í fundagerðum enda þær ekki ítarlegar, nema að viðkomandi athugasemd sé bókuð. Því er það að að fulltrúi lýðræðisflokkanna í skipulagsnefnd bókar eftirfarandi:
Það er jákvætt að bæjaryfirvöld hyggi á gerð fleiri búsetukjarna í bæjarfélaginu, enda löngu tímabært. Það verður hins vegar að teljast óheppilegt að meirihlutinn skuli ekki hafa mótað skýra stefnu hvað þessa uppbyggingu áhrærir, né betri valkosti hvað staðsetningu varðar.
Við uppbyggingu og staðsetningu búsetukjarna eiga þarfir og réttindi notenda að vera í forgangi, svo sem m.a. tækifæri til að velja sér búsetustað til jafns við aðra. Skýrt er kveðið á um þessi réttindi í alþjóðlegum samningum og í stefnuskrá Landsamtaka þorskahjálpar, enda augljóst.
Verði af þessari fyrirætlan þá verða þrír kjarnar saman á svæði sem er hefur um 500 m radíus. Það eru um 850 m milli búsetukjarna Unnargrundar og ætlaðrar lóðar við Bergás og einungis um 250 m milli ætlaðra lóða við Bergáss og Brekkuáss. Hinir völdu kostir eru þröngir og skerða auk þess rétt þeirra sem þegar búa við þessar götur, sérstaklega á þetta við Bergás.
Benda má á marga aðra kosti um góða staðsetningu svo sem í Urriðaholti sem enn er í uppbyggingu og fjölmargir möguleikar auk þess sem kjarni af þessu tagi fellur vel að þeirra markmiðum og fjölþætt samfélag þar að sögn. Þá er gríðarlega stórt ósnert svæði efst á Arnarnesi þar sem áður var fyrirhugað að byggja. En þá erum við reyndar komin í mjög „viðkvæmann“ bæjarhluta hvað uppbygginu og breytingar varðar, sé horft til fyrri ákvarðana meirihlutans í gengum tíðina.
Hugsum lengra og skipuleggjum betur. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.
03
Garðahverfi, dsk breyting, lóð fyrir uppsátur og naust.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir nausti sem er ætlað að hýsa aðstöðu fyrir Kajakklúbbinn Sviða. Lögð fram athugasemd sem borist hefur ásamt umsögn Umhverfisstofnunar en lóðin er staðsett við mörk friðlýsts svæðis.
Í umsögn kemur fram að meta þurfi umfang starfseminnar sem breytingin leiðir af sér.
Í athugasemd er lýst efasemdum um að breytingin sé í anda deiliskipulagsins og að umferð fari fram hjá Hausastöðum og lokað verði fyrir hringakstur.
Skipulagsnefnd bendir á að kajakklúbburinn starfi nú þegar og hafi aðstöðu við mörk fólkvangsins í Hliði. Sú staðsetning leggst af með nýrri staðsetningu. Hér er eingöngu um kajakróður að ræða en ekki vélknúin farartæki sem eru óheimil samkvæmt friðlýsingarskilmálum. Það er mat nefndarinnar að áhrif af starfsemi kajakklúbbsins séu óveruleg.
Varðandi naustið þá er það sýn nefndarinnar að naust ásamt uppsátri sé algerlega í anda byggðar í Garðaholti og deiliskipulagsins og styrki það yfirbragð sem deiliskipulagið leggi áherslu á. Þannig er umrætt naust minna að flatarmáli og hæð en sá hjallur sem fyrir er í nágrenninu. Ekki er fyrirhugað samkvæmt tillögunni að loka fyrir hringakstur á svæðinu og gert verður ráð fyrir að aðal aðkoman verði frá Hliðsnesvegi.
Skipulagasnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna óbreytta.
04
Tunguás 8 - stækkun byggingareits v/viðbyggingar - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn að lokinni skoðun hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að byggingarreitur verði rofinn að götu.
05
Ögurás 1-7 svalir og pallur með opnun á 1-2 hæð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
06
Leiksvæði í Sjálandi - deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa. Tillaga að útfærslu leiksvæðis fylgdi breytingartillögunni.
Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði, skipulagsnefnd leggur til að ærslabelgur verði tekinn út.
07
Dalsbyggð 21 - fyrirspurn
Lögð fram ný tillaga að útfærslu breytinga.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem byggingarleyfisumsókn á svæði án deiliskipulags. Grenndarkynna skal eigendum Dalsbyggðar 17, 19 og 23, Hæðarbyggðar 10 og 12; Hlíðarbyggðar 40,42 og 44.
08
Aratún 36 - stækkun byggingarreits - Ósk um dsk breytingu
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Túna að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til að tækni- og umhverfissvið láti vinna hæðarblað þar sem hæðarkóti bílageymslu verður skilgreindur ásamt skuggavarpi.
09
Austurhraun 5 - Stækkun byggingarreits
Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Engar athugassemdir. Tillagan skoðast samþykkt.
10
Beiðni um að hefja vinnu við gerð deiliskipulags
Lagt fram erindi frá Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa þar sem óskað er eftir heimild landeigenda til þess að vinna sjálfur að gerð deiliskipulags fyrir fyrirhugaðan fólkvang og fyrir endurskoðun gildandi deiliskipulags golfvallarins í Urriðakotsdölum. Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart erindinu en bendir á að samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þá skal landeigandi leggja fram lýsingu á skipulagsverkefninu í bæjarstjórn á sama tíma og beiðni um heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi. Nefndin leggur því til að landeigandi leggi lokahönd á skipulagslýsingu í samráði við tækni- og umhverfissvið sem lögð verður fram í bæjarstjórn um leið og beiðni landeiganda.
11
Glaðheimar vesturhluti. Breytt deiliskipulag í Kópavogi.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Glaðheima í Kópavogi. Tillagan er í auglýsingu og frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. ágúst.
Breytingin mun hafa áhrif á umferðarflæði aðliggjandi byggðar, m.a. í fyrirhugaðri og núverandi byggð í Hnoðraholti og vegtengingum við þá byggð frá Arnarnesvegi og Reykjanesbraut. Skipulagsnefnd felur tækni- og umhverfissviði að greina áhrif breytingarinnar á byggð í Garðabæ og leggja fram tillögur að athugasemd við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.
12
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun - Breyting á aðalskipulagi - Fannborgarreitur - Traðarreitur-vestur. Vinnslutillaga
Lögð fram tillaga að breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Fannborgarreitur, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B1-1) og Traðarreitur-vestur, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B4) sem er nú til kynningar sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillaga að breyttu aðalskipulagi er kynnt samtímis og vinnslutillaga II að deiliskipulagi svæðisins. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd en leggur áherslu á að meta áhrif framkvæmda á stofnvegakerfið.
13
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Breyting á aðalskipulagi. Traðarreitur-eystri, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B29)
Lögð fram tillaga að breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, Traðarreitur-eystri, þróunarsvæði fyrir íbúðarbyggð (reitur B29) er nú til kynningar sbr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillaga að breyttu aðalskipulagi er kynnt samtímis og tillaga að deiliskipulagi svæðisins. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd en leggur áherslu á að meta áhrif framkvæmda á stofnvegakerfið.
15
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6
15.1 - 2004426 - Bjarnastaðavör 2A - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram byggingarleyfisuppdrættir að einbýlishúsi að Bjarnastaðavör 2a. Ekki er kveðið sérstaklega á um þakgerð í skipulagsskilmálum en kveðið á um 5 metra mænishæð sem túlkast svo að sú hæðarskilgreining miði við hallandi eða uppbrotið þak. Í markmiðum deiliskipulagsins er kveðið á um að samræma skuli uppbyggingu við núverandi byggð. 5 m vegghæð myndi ganga gegn því markmiði. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að þak sé flatt á meðan að vegghæð húss er ekki hærri en 3,5 m. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.10 - 2005418 - Litlabæjarvör 20 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar 4.apríl síðastliðinn um byggingarleyfisumsókn að Litlubæjarvör 19 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að þakskyggni nái út fyrir byggingarreit.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.2 - 2005183 - Hákotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn af breytingum á íbúðarhúsinu að Hákotsvör 8. Ekkert deiliskipuag er í gildi fyrir Hákotsvör.
Breytingartillaga gerir ráð fyrir viðbyggingu sem nær rúma 7 metra frá húsvegg til norðurs.
Grenndarkynning fór fram árið 2017 en þar var tekið fram að viðbygging væri í flútti við norðurvegg húss númer 10.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar að nýju sem byggingarleyfi í byggð án deiliskipulags sbr. 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Hákotsvarar 5,6,7,10 og 11. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.3 - 2005044 - Aratún 6 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á bílageymslu. Hæðarkóti bílageymslunnar sem fyrir er er 8,5 cm neðar en gólfkóti íbúðarhúss. Miða skal við hæðarkóta núverandi bílageymslu þegar hámarkshæð er ákvörðuð.
Samkvæmt tillögu er hæð bílageymslu 3,2 m og því í samræmi við deiliskipulag. Hámarkshæðin sem miðar við gólfkóta sem er 8,5 cm neðar en gólfkóti íbúðarhússins gildir einnig fyrir önnur rými sem eru í sama húshluta. Byggingarreitur samkvæmt deiliskipulagi nær að lóðarmörkum. Að mati skipulagsstjóra er tillagan því í samræmi við deiliskipulag Silfurtúns. Umsækjanda er bent á að kynna byggingarleyfið og fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir eigenda aðliggjandi lóðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.4 - 2006080 - Goðatún 12 - Endurbygging bílskúrs - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Í skilmálum Silfurtúns er kveðið skýrt á um það að bílageymslur sem séu endurbyggðar á sama stað þar sem þær stóðu áður og eru utan byggarreits skuli í hvívetna fylgja stærð og hæð bílageymslunnar sem fyrir er.
Það er hinsvegar ljóst að bílageymsla verður ekki byggð innan byggingarreits á meðan að núverandi hús stendur.
Svar skipulagsstjóra er því að tillögu sem gerir ráð fyrir bílageymslu sem er stærri en sú sem nú stendur verður að vísa til grenndarkynningar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.5 - 2004225 - Krókamýri 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum og því var byggingarleyfi grenndarkynnt í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.6 - 2006053 - Kinnargata 39-41, Stigi af 2 hæð niður í garð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Eins og fram kemur í grein 4.7.4. í skilmálum Urriðaholts Austurhluta þá eru opnar útitröppur heimilaðar utan byggingarreits. Svar við því atriði er því jákvætt. Varðandi útfærslu lóðar og fjölda íbúða vísast til umsagnar deiliskipulagshöfundar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.7 - 2005211 - Mosagata 4 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar Arkís ehf. Skipulagsstjóri tekur undir niðurstöðu umsagnar. Svarið er því neikvætt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.8 - 2005246 - Bæjargata 1 - lóð
Lögð fram tillaga og fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu skjólveggja og girðinga á lóð. Áður hafði borist tillaga sem vísað var til umsagnar deiliskipulaghöfundar sem gerði athugasemd við útfærsluna. Nú er lögð fram ný tillaga þar sem komið hefur verið til móts við athugasemdirnar. Umsögn deiliskipulagshöfundar um nýja tillögu er sú að tillagan er í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsstjóri tekur undir umsögn deiliskipulaghöfundar og gerir ekki athugasemd við útfærsluna. Bent skal á að senda skal inn lóðaruppdrátt arkitekts samkvæmt ákvæðum deiliskipulags ássamt samþykki annara eigenda fjölleignahússins.Athuga þarf misræmi á uppdráttum í eignaskiptayfirlýsinngu og á síðustu samþykktu byggingarleyfisuppdráttum. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
15.9 - 2003169 - Marargrund 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við hæð og útfærslu girðingar að götu. Sömuleiðis gerir hann ekki athugasemd við hæð girðingar á mörkum að Bólstað á meðan að samþykki eigenda Bólstaðar liggur fyrir. Bent er á að í afgreiðslu þessa máls er ekki tekin afstaða til bílageymslu sem sýnd er á uppdrætti né staks bílastæðis í suðvesturhorni lóðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
16
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 7
16.1 - 2006307 - Litlabæjarvör 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram teikningar sem fylgja byggingarleyfisumsókn. Hámarkshæð er 4,4 m og hæð lægri hluta er 3,7. Í fyrirspurn til skipulagsstjóra sem svarað var með tölvupósti 3.júní voru umræddar hæðir 20 cm lægri. Því var svarað að skipulagsstjóri teldi eðlilegt að miða við vegghæð 3,5 metrar. Vísað var til ákvæða um 5 metra mænishæðar í deiliskipulagi og markmiðs deiliskipulagsins að laga skuli nýja byggð að núverandi byggð. ´Sjá einnig bókun á afgreiðslufundi skipulagsstjóra 15.júní sl. um Bjarnarstaðavör 2A.
Tillögu vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
16.2 - 2005371 - Sveinskotsvör 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar 4.apríl síðastliðinn um byggingarleyfisumsókn að Litlubæjarvör 19 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að þakskyggni nái út fyrir byggingarreit. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
16.3 - 2003173 - Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram nýjar aðalteikningar íbúðarhúss sem hefur verið breytt frá eldri teikningum. Þak er nú óuppbrotið og hæð þess 12,67 í stað 12,47 og 11,47.
Skipulagsstjóri bendir á að ef þak hússins er flatt og án uppbrots skal miða við 4 metra hæð yfir gólfkóta sem er 8,2 sbr. núverandi hús. Ef þak er uppbrotið er hægt að miða við rishæð sem er 5 metrar. Í deiliskipulagi er kveðið á um 1 m rishæð yfir hámarkshæð. Það er matsatriði hve stór hluti þakflatar í uppbrotnu þaki geti farið upp í rishæð. Það er mat skipulagsstóra að fyrri útfærsla hússins hafi verið með hæfilega uppbrotið þak. Ef umsækjandi óskar eftir því að leggja fram hinar breyttu teikningar þarf að óska eftir deiliskipulagsbreytingu.
16.4 - 2006486 - Kinnargata 39 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn hönnuðar um gólfkóta parhússins. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
17
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 8
17.1 - 2004152 - Grænigarður - nýtt deiliskipulag - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lagt fram samþykki allra umráðenda Grænagarðs um að óskað verði eftir skipulagsferli með það að markmiði að lóð íbúðarhússins verði skilgreind sem íbúðarbyggð í aðalskipulagi og sem einbýlishúslóð í deiliskipulagi. Málinu vísað til mótunar tillagna að skipulagsbreytingum í Garðahverfi sem eru í undirbúningi.
17.2 - 2005191 - Goðatún 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir bílageymslu sem liggur að lóðarmörkum að Goðatúni 14 og Hörgatúni 7. Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Silfurtúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Goðatúns 10, 11 og 14 og Hörgatún 5 og 7.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
17.3 - 2006442 - Smádreifistöð við Maltakur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir lóð fyrir smádreifistöð á horni Maltakurs og Skólabrautar.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum að Maltakri 1 og Fjölbrautarskóla Garðabæjar.