Búsetukjarni Bergás 3, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir hverfismiðstöð við enda Bergáss breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga.
Tillagan var kynnt á íbúafundi þann 23. júní sl.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Þar koma fram mótmæli við tillögunni þar sem fram kemur skýr vilji íbúa til þess að svæðið verði óbyggt í framtíðinni. M.a. er vísað til þess að þetta sé vinsælt leiksvæði barna í hverfinu.
Í ljósi viðbragða sem koma fram í ábendingum og á íbúafundi leggur skipulagsnefnd til að lóð verði felld út á þessum stað og svæðið skilgreint sem opið svæði. Vísað til tækni- og umhverfissviðs til nánari skoðunar.
Baldur Ó. Svavarsson bókaði eftirfarandi: Undiritaður benti þegar í upphafskynningu þess máls, á fundi skipulagsnefndar í vetur, hversu óheppileg þessi staðsetning búsetukjarna við Bergás og Brekkuás er. Að vísu koma þær athugsemdir ekki fram í fundagerðum enda þær ekki ítarlegar, nema að viðkomandi athugasemd sé bókuð. Því er það að að fulltrúi lýðræðisflokkanna í skipulagsnefnd bókar eftirfarandi:
Það er jákvætt að bæjaryfirvöld hyggi á gerð fleiri búsetukjarna í bæjarfélaginu, enda löngu tímabært. Það verður hins vegar að teljast óheppilegt að meirihlutinn skuli ekki hafa mótað skýra stefnu hvað þessa uppbyggingu áhrærir, né betri valkosti hvað staðsetningu varðar.
Við uppbyggingu og staðsetningu búsetukjarna eiga þarfir og réttindi notenda að vera í forgangi, svo sem m.a. tækifæri til að velja sér búsetustað til jafns við aðra. Skýrt er kveðið á um þessi réttindi í alþjóðlegum samningum og í stefnuskrá Landsamtaka þorskahjálpar, enda augljóst.
Verði af þessari fyrirætlan þá verða þrír kjarnar saman á svæði sem er hefur um 500 m radíus. Það eru um 850 m milli búsetukjarna Unnargrundar og ætlaðrar lóðar við Bergás og einungis um 250 m milli ætlaðra lóða við Bergáss og Brekkuáss. Hinir völdu kostir eru þröngir og skerða auk þess rétt þeirra sem þegar búa við þessar götur, sérstaklega á þetta við Bergás.
Benda má á marga aðra kosti um góða staðsetningu svo sem í Urriðaholti sem enn er í uppbyggingu og fjölmargir möguleikar auk þess sem kjarni af þessu tagi fellur vel að þeirra markmiðum og fjölþætt samfélag þar að sögn. Þá er gríðarlega stórt ósnert svæði efst á Arnarnesi þar sem áður var fyrirhugað að byggja. En þá erum við reyndar komin í mjög „viðkvæmann“ bæjarhluta hvað uppbygginu og breytingar varðar, sé horft til fyrri ákvarðana meirihlutans í gengum tíðina.
Hugsum lengra og skipuleggjum betur. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.