Aratún 36 - stækkun byggingarreits - Ósk um dsk breytingu
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
6. fundur
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem næri til lóðarinnar Aratún 36 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Reiturinn stækkar um 1,5 metra til vesturs inn á baklóð. Engar athugasemdir hafa borist innan tilskilins frests.
Breyting á deiliskipulagi Silfurtúns hefur verið staðfest og gerir deiliskipulag nú ráð fyrir hámarksnýtingarhlutfalli lóðar þar sem landlagshalli skapar möguleiki á kjöllurum 0,45. Þau skilyrði eru fyrir hendi á lóðinni.
Deiliskipulagsbreytingin vegna stækkunar byggingarreits bílageymslu skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem næri til lóðarinnar Aratún 36 að lokinni grenndarkynningu. Reiturinn stækkar um 1,5 metra til vesturs inn á baklóð.
Engar athugasemdir hafa borist innan tilskilins frests.
Skipulagsnefnd vísar málinu til afgreiðslu hjá skipulagsstjóra þegar breyting deiliskipulags Silfurtúns vegna nýtingarhlutfalls hefur verið staðfest.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
2. (898). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir bílskúr á lóðinni við Aratún 36. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Aratúns 19, 21, 23, 24, 34 og 38. (Mál nr. 2003384)
Baldur Ólafur Svavarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
06
4. (2011). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits fyrir bílskúr á lóðinni við Aratún 36. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Aratúns 19, 21, 23, 24, 34 og 38.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu byggingarreits bifreiðargeymslu. Reiturinn stækkar um 1,5 metra til vesturs inn á baklóð.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Silfurtúns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2020 og er vísað til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Aratúns nr.19,21,23,34 og 38. Tími athugasemdafrests skal vera sá sami og auglýsingar tillögu um breytingu nýtingarhlutfalls í Silfurtúni.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
8. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits bílageymslu til vesturs um 1,5 m.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tilögunni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu samhliða tillögu að breytingu deiliskiplags sem gerir ráð fyrir auknu nýtingarhlutfalli á öllum lóðum í Silfurtúni og samþykkt var að vísa til mótunar á fundi skipulagsnefndar í vor.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
6. fundur
Skipulagsnefnd leggur til að mótuð verði tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall húsa á einni hæð hækki úr 0,3 í 0,35 og ef landslag gefur tilefni til kjallara undir húsi eða bílageymslu geti nýtingarhlutfall orðið 0,45. Byggður flötur á lóð yrði ekki meiri en 35%. Er þetta til samræmis við deiliskipulagsáætlanir annarra einbýlishúsahverfa í innbæ Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
12. (871). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust tvær athugasemdir. Svör við athugasemdum liggja fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst um samþykkt hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2003384)
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
12. (871). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og barst ein athugasemd. Svar við athugasemd liggur fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst um samþykkt hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2003384)
Bæjarráð Garðabæjar
12
34. (1942). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og barst ein athugasemd. Svar við athugasemd liggur fyrir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst um samþykkt hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
8. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur bílageymslu stækki til vesturs um 1,5 metra, þ.e. inn á baklóðina. Einnig gerir tillagan ráð fyrir því að nýtingarhlutfall hækki úr 0,3 í 0,5 vegna rýma sem fyrir eru í kjallara hússins og fyrirhugaðs lagnarýmis undir bílskúr.
Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Eigendur Aratúns 34 gera athugasemd við það að bílageymsla lengist um 1,5 m til norðurs. Einnig er ítrekað að bílageymsla verði ekki hærri en 3,2 m.
Svar skipulagsnefndar vegna athugasemda er eftirfarandi: Fyrir mistök segir í erindi með grenndarkynntum gögnum að byggingareitur stækki til norðurs, rétt er að hann stækki til vesturs eins og segir á uppdrætti í texta og lesa má af uppdrætti. Tillagan gerir ekki ráð fyrir því að bílskúr sé hærri en 3,2 m.
Lögð fram tillaga að hæðarblaði sem Efla hefur unnið og þar kemur fram hæðarkóti aðalhæðar hússins og hæðarkóti bílageymslunnar sem er 50 cm lægri en hæðarkóti aðalhæðar. Hæðarkóti sem er 50 cm lægri byggir á upphaflegum teikningum hússins. Heimiluð hæð bílageymslu, 3,2 m miðast við hæðarkóta bílageymslunnar. Skipulagsnefnd samþykkir hæðarblaðið og vísar því til bæjarverkfræðings til útgáfu. Mæliblað sem byggir á deiliskipulagi var gefið út árið 2016 og er í gildi.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
7. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Túna að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd leggur til að tækni- og umhverfissvið láti vinna hæðarblað þar sem hæðarkóti bílageymslu verður skilgreindur ásamt skuggavarpi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Lögð fram athugsemd sem borist hefur. Vísað til skoðunar og úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
16
7. (866). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits á lóðinni við Aratún 36, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Aratúns 19, 21, 23, 34, 38.
Bæjarráð Garðabæjar
17
14.(1923). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Silfurtúns í tilefni umsóknar um stækkun byggingareits á lóðinni við Aratún 36, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Aratúns 19, 21, 23, 34, 38.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
4. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun bygggingarreits bílageymslu um 1,5 m til norðurs.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Silfurtúns og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Aratúns 19, 21, 23, 34 og 38.