Beint í efni

6. fundur

29.04.2021
Skipulagsnefnd Garðabæjar

6. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

29.04.2021

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2010080

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts að lokinni forkynningu 2.mgr.30.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Engar ábendingar bárust á forkynningartíma sem kalla á breytingu tillögunnar.

Meiihluti skipulagsnefndar vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 31.gr.sömu laga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar. Baldur Ó Svavarsson greiðir atkvæði gegn tillögunni.

Málsnúmer 2010078

02

Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar sem borist hafa á grenndarkynningartíma lagðar fram. Ábendingum vísað til úrvinnslu deiliskipulagsráðgjafa

og tækni- og umhverfissviðs.

Baldur Ó. Svavarsson greiðir atkvæði á móti afgreiðslu meirihlutans og tekur undir innsendar athugasemdir.

Baldur Ó Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun:

"Minni enn á fyrri bókanir, viðvaranir og ábendingar varðandi svokallað uppbyggingu og „verndun byggðamynsturs 20. aldar í Garðahverfi“ - Þær sem telja orðið á annantuginn og ná mörg ár aftur í tímann.Framkomnar athugasemdir íbúa á svæðinu við byggingaskilmálum í skipulaginu sbr. fundargögn, eru nákvæmlega þær sem undirritaður hefur varað við og staðhæft að kæmu fram. Jafnframt staðhæfðir undirritaður að meirihlutinn myndi gefa eftir og víkja frá þessum skilmálum. Byggingaskilmálar nýbygginga eru með ólíkindum og í engum takti við þessa öld né þá síðustu.Ekki þarf að fjölyrða frekar um meðferðina á þessu hverfi og glötuðum möguleikum þess. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."

Sigurður Guðmundsson formaður skipulagsnefndar leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta :

"Garðahverfið var deiliskipulagt árið 2013 í heild sinni og er þar um að ræða 79 hektara af u.þ.b. 420 hekturum Garðaholts. Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 hefur Garðahverfið minjaverndarsjónarmið að leiðarljósi og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði.

Áhersla er á menningar og náttúruminjar og að gera svæðið aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Garðahverfið nýtur auk þess verndar frá árinu 2017 samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð."

Málsnúmer 2102111

03

Víðiholt íbúðabyggð. Deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Víðiholt milli Asparholts og hesthúsabyggðar Sóta.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á forkynningartíma og leita skal umsagnar umsagnaraðila sem og Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.

Málsnúmer 2102110

04

Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar á félagssvæði Sóta. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 4.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á forkynningartíma og leita skal umsagnar umsagnaraðila sem og Ungmennafélags Álftaness og Hestamannafélagsins Sóta.

Málsnúmer 2104420

05

Vífilsstaðahraun, deiliskipulag Fólkvangs

Formaður skipulagsnefndar leggur fram tillögu um að tækni-og umhverfissviði verði falið að hefja vinnu við mótun tillögu að deiliskiplagi Fólkvangs í Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum. Deiliskipulagssvæðið verði um 70 ha og afmarkast það af Reykjanesbraut í vestri, Vífilsstaðalæk í norðri, Heiðmörk í austri og Urriðaholti í suðri.

Skipulagsnefnd tekur undir tillögu formanns og vísar henni til tækni-og umhverfissviðs.

Málsnúmer 2104268

06

Sjávargata 8 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að stækka byggingarreit til austurs sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við gafl hússins.

Tillögu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2012115

07

Smáraflöt 12 Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá tækni-og umhverfissviði ásamt innsendum athugasemdum. Lögð fram greinargerð umsækjanda vegna innsendra athugasemda.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 2003384

08

Aratún 36 - stækkun byggingarreits - Ósk um dsk breytingu

Skipulagsnefnd leggur til að mótuð verði tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall húsa á einni hæð hækki úr 0,3 í 0,35 og ef landslag gefur tilefni til kjallara undir húsi eða bílageymslu geti nýtingarhlutfall orðið 0,45. Byggður flötur á lóð yrði ekki meiri en 35%. Er þetta til samræmis við deiliskipulagsáætlanir annarra einbýlishúsahverfa í innbæ Garðabæjar.

Málsnúmer 2102539

09

Blikanes 9 - Frágangur á lóð -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði auka bílastæði í norðausturhorni lóðar auk þeirra sem eru framan við bílageymslu.

Fjögur dæmi þess eru í götunni að fleiri en 3 bílastæði hafa verið gerð og sum þeirra ekki fyrir framan bílageymslur. Engin þeirra hefur hlotið skipulagsferli en ljóst er að breytingar sem þessar kalla á deiliskipulagsbreytingu.

Málsnúmer 2104263

10

Reynilundur 11 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um staðsetningu smáhýsis við lóðarmörk að bæjarlandi.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir hönd Garðabæjar sem landeiganda staðsetningu smáhýsis eins og teikning sýnir og er í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um stærð og hæð smáhýsa sem undanþegin eru byggingarleyfi.

Skipulagsstjóri víkur af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2012166

11

Keldugata 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa.

Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir um að tillagan samræmist ekki vel vistvænum áherslum deiliskipulags Urriðaholts né áherslum Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 um breidd innkeyrsla inn á bílastæði.

Í ljósi þess og andstöðu íbúa í götunni er tillögunni hafnað.

Málsnúmer 2103205

12

Maríugata 9-11 deiliskipulagsbreyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því að fjölgað verði um fjórar íbúðir stærri en 90 m2 og fjórar íbúðir minni en 90 m2. Bílastæðum á lóð fjölgar til samræmis við fjölgun íbúða.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2103593

13

Kinnargata 92 - stækkun bílakjallara -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts austurhluta sem gerir ráð fyrir því fjölgi um eina íbúð á lóðinni (jarðhæð) og að byggingarreitur bílakjallar breytist.

Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2104445

14

Hönnun - Útboð - Gatnagerð í Vetramýri

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir framkvæmdaleyfi til gatnagerðar í Vetrarmýri sem byggir á nýstaðfestu deiliskipulagi.

Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga samþykkir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi til gatnagerðar í Vetrarmýri.

Málsnúmer 2104444

15

Framkvæmdaleyfi - Lagning 11 kV háspennu jarðstrengs milli Kaldárselsveg og Urriðaholts

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir framkvæmdaleyfi til lagningar 11 kV háspennujarðstrengs meðfram Flóttamannavegi frá bæjarmörkum við Kaldárselsveg að Urriðaholti til þess að auka afhendingaröryggi rafmagns í Garðabæ.

Í samræmi við 13.gr.skipulagslaga samþykkir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengsins.

Málsnúmer 2104418

16

Framkvæmdir - Efnislosun

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun í Glerhallardýi á fyrirhuguðu golfvallarsvæði við vestan- og norðanverða Bessastaðatjörn eins og aðalskipulag og tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir. Efnið sem losað verður mun síðar verða nýtt til landslagsmótunar golfvallarins. Efnið sem losað verður á staðnum verður ómengaður jarðvegur úr uppbyggingarsvæðum á Álftanesi.

Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfið í samræmi við 13.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2101506

17

Rannsókn um deilibíla

Lagt fram.

Málsnúmer 2103398

18

Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040. Tillaga í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða umsögn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar sem umsögn Garðabæjar við tillögu að Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.

Málsnúmer 2103047F

19

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4

19.1 - 2103291 - Viðbótar lóð við Nýjabæ - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn ábúenda á Nýjabæ II um það hvort til greina komi að skilgreina íbúðarhúslóð úti á túni vestan Nýjabæjar II.
Skipulagsstjóri telur að staðsetning húss á þessum stað sé ekki í samræmi við markmið deiliskipulags Garðahverfis sem m.a. leggur áherslu á að nýbyggingar verði nærri bæjarstæðum þeirra býla sem hafa staðir þar um aldir og að tún milli bæja haldi sér. Þar sem að íbúðarhús meðfram Garðavegi skera sig út úr búsetulandslagi í Garðahverfi væri æskilegra að nýbygging og lóð væri hluti af þeirri heild, t.d. við hlið Grundar eða Nýjabæjar 2.

19.10 - 2101527 - Kinnargata 21 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu þaks eins og tillaga sem barst með tölvupósti frá arkitekt þann 10.mars sl. Bent er á að samkvæmt deiliskipulagi er torf heimilað sem þakefni.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað stærð og staðsetningu bílageymslu varðar og vísast þar til umsagnar deiliskipulagshöfundar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.11 - 2101090 - Kinnargata 47 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem hækkun hæðarkóta frá uppgefnum kóta á hæðarblaði. Uppgefin hæðarkóti á byggingu er 68,75 fyrir íbúðir og 68,7 fyrir bílgeymslu. Byggingin er hæðasett í kóta 69,05 íbúðahluti og 69,0 bílgeymsla. Byggingin er innan hæðamarka deiliskipulagsins þrátt fyrir að vera hæðasett30 cm hærra en hæðarblað gerir ráð fyrir.
Jákvæð umsögn gatnahönnuðar liggur fyrir.
Skipulagsstjóri gjörir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.12 - 2103309 - Hraungata 52 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn hvort heimilað verði að nota þakpappa sem ystu klæðningu í þaki.
Með vísan í aðrar sambærilegar afgreiðslur gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.13 - 2103318 - Hraungata 54 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn hvort heimilað verði að nota þakpappa sem ystu klæðningu í þaki.
Með vísan í aðrar sambærilegar afgreiðslur gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað notkun þakpappa varðar á meðan litur er í gráskala. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.2 - 2003297 - Hraunhólar 7 - breyting aðkoma að húsi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að gera innkeyrslu á lóðina Hraunhólar 7 frá Lynghólum. Innkeyrsla hefur verið gerð frá Lynghólum á lóðinni Hraunhólar 9 í óleyfi.
Skipulagsstjóri mælir ekki með því að lóðir við Hraunhóla séu með aðkomu frá Lynghólum og mun því hafna umsóknum um deiliskipulagsbreytingu þess efnis.

19.3 - 2004418 - Leiksvæði í Sjálandi - deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Sjálands að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að sparkvöllur við Vesturbrú breytist í leiksvæði og sparkvöll. Lögð fram tillaga að nýrri útfærslu leiksvæðis og sparkvallar sem var einnig kynnt þeim sem grenndarkynning náði til. Engar athugasemdir hafa borist. Breytingartillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Sjálands í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

19.4 - 2102190 - Ægisgrund 12-Umsókn um byggingarleyfi

Skipulagsstjóri samþykkir vegg og 15 m2 smáhýsi á lóðarmörkum fyrir hönd Garðabæjar sem eiganda aðliggjandi lands eins og teikning sýnir. Æskilegra er að girðing sé ekki hærri en 1,5 m.
Ekki er heimilt að aka bifreiðum eftir göngustíg en ekki er gerð athugasemd við að hlið verði á girðingu þannig hægt verði að geyma kerrur inni á lóð sem verður þá komið þangað handvirkt.

19.5 - 2103298 - Brekkubyggð 35 neðri hæð - Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits fyrir sólskála við austurhlið neðri hæðar Brekkubyggðar 35.
Deiliskipulag Brekkubyggðar að neðanverðu telst ekki í gildi þar sem það var samþykkt árið 1977 þ.e. áður en fyrsta aðalskipulag sveitarfélagsins tók gildi.
Með vísan í sambærilegar breytingar í öðrum húsum við Brekkubyggð að neðanverðu vísar skipulagsstjóri tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem byggingarleyfisumsókn á svæði án deiliskipulags. Samþykki annarra lóðarhafa liggur fyrir, þ.e. Brekkubyggðar 23, 25, 27,29,31,33,35 (efri hæðar) 37 og 39.
Grenndarkynna skal eigendum Brekkubyggðar 17,19,21, og 41.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.6 - 2103223 - Árakur 33 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimiluð verði þegar byggð 18 fermetra útigeymsla á horni raðhúslóðarinnar.
Geymslan stendur að hluta til utan lóðar og ekki hefur verið aflað samþykkis Garðabæjar fyrir girðingu sem risið hefur á lóðarmörkum.
Fyrirspurn vísað til skipulagsnefndar.

19.7 - 1911231 - Víkurgata 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lögð fram afrit af uppdráttum þar sem að allir þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.
Í samræmi við 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 er tímabil grenndarkynningar hér með stytt og tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

19.8 - 2103438 - Holtsvegur 45 - girðing -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskiplagshöfundar.

19.9 - 1602431 - Mosagata 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn vegna frágangs á lóð, m.a. skjólveggja. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri tekur undir þau atriði sem fram koma í umsögn.
Ef víkja á frá deiliskipulagi skal leggja fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu.

Málsnúmer 2104025F

20

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 5

20.1 - 2104095 - Strönd, 225 Garðabæ - gestastofa, Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eiganda Strandar við Höfðabraut á Álftanesi hvort heimilað verði að reisa smáhýsi á lóðinni sem ætlað er til íveru (gestahús). Flatarmál yrði 15 m2.
Svar skipulagsstjóra: Þar sem að húsið er ætlað til íveru gilda ekki ákvæði byggingarreglugerðar um smáhýsi á lóð sem undanþegin eru byggingarleyfi. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og þar af leiðandi enginn byggingarreitur skilgreindur þurfa allar byggingarleyfisumsóknir að undirgangast grenndarkynningarferli í samræmi við 44.gr.skipulagslaga. Ef tillögu er vísað til grenndarkynningar í samræmi við framangreinda grein þá þarf tillagan að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Tvö hús á lóð ætluð til íveru (íbúðarhús og gestahús) geta seint talist til sama byggðamynsturs og byggð við Höfðabraut. Öðru máli gegnir um viðbyggingu við húsið.
Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er í mótun en það er ekki sennilegt að samþykkt verði að heimila aukahús á lóð til íveru þar sem það hefði mikið fordæmisgildi í einbýlishúsabyggð.
Ef eingöngu er horft til staðsetningu smáhýsis sem ekki er ætlað til íveru er tillaga A ekki æskileg vegna nándar við næsta hús og staðsetningar í bili milli húsa, tillaga C kæmi til greina ef smáhýsið stendur lágt í landi og spillir ekki útsýni frá næsta húsi. Tillaga B væri æskilegasta staðsetningin en kallar á góða lausn ef ekki á að raska ásýnd hússins.

20.10 - 2102296 - Austurhraun 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.11 - 1902062 - Víkurgata 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vestur í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.12 - 2103593 - Kinnargata 92 - stækkun bílakjallara -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar um innihald fyrirspurnar. Fyrirspurn og umsögn vísað til skipulagsnefndar.

20.13 - 2103438 - Holtsvegur 45 - girðing -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Umsögn deiliskipulagshöfundar um innihald fyrirspurnar lögð fram. Skipulagssstjóri tekur undir umsögnina og er í henni að finna svar við fyrirspurninni.

20.14 - 2012302 - Sveinskotsvör 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir skyggni í tengslum við stofu sem nær vel út fyrir byggingarreit á götuhlið með burðarsúlu utan byggingarreits.Ekki er kveðið sérstaklega á um skyggni í deiliskipulagsskilmálum en byggingar skulu vera innan byggingarreits. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2.mgr.43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar. Grenndarkýnna skal eigendum Bjarnastaðavarar 1 og 2a, Sviðholtsvarar 1 og Sveinskotsvarar 2,3 og 4. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.15 - 2103204 - Maríugata 13-15 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi m.a. um fjölgun íbúa. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

20.16 - 2103205 - Maríugata 9-11 deiliskipulagsbreyting - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi m.a. um fjölgun íbúa. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.

20.17 - 2005369 - Ögurás 1-7 svalir og pallur með opnun á 1-2 hæð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirpurn hönnuðar þar sem spurt er hvort heimilað verði að yfirbyggðarsvalir fari lítillega út fyrir byggingarreit á einum stað.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað yfirbyggðar svalir varða sem ná lítillega út fyrir byggingarreit. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.2 - 2102057 - Hólmatún 25 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hólmatúns sem nær til parhúslóðarinnar Hólmatún 25 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur smáhýsum á lóð allt að 20 m2 að samanlögðum grunnfleti. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hólmatúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.1213/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.3 - 2104212 - HS Veitur lóð Bjarnastaðir - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn Veitna fyrir nýrri staðsetningu spennistöðvar á lóð Bjarnastaða sem er í eigu Garðabæjar. Reisa á nýja stöð sem leysir nústandandi spennustöð af en hún stendur um 7 m norðar en staðurinn sem spurt er um.
Skipulagsstjóri vísar tillögu um nýja lóð fyrir spennistöð til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. og 5.mgr.13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynna skal eigendum Sveinskotsvarar 2, Hákotsvarar 1 og Þóroddarkots 2.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.4 - 2102344 - Hraunhólar 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sýndur er lóðarfrágangur sem er ekki í samræmi við samþykkt byggingarleyfi. Norðurhluti lóðar er ekki stallaður eins og samþykkt var og er því ásýnd lóðarinnar að Lynghólum öðru vísi en til stóð.
Skipulagsstjóri óskar eftir rökstuddri skýringu á því af hverju lóðin hefur verið útfærð með öðrum hætti en byggingarleyfi var veitt fyrir.

20.5 - 2103549 - Breiðás 5 - stækkun bílskúrs Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um 10,5 m2 viðbyggingu við enda nústandandi bílageymslu. Árið 1981 var veitt byggingarleyfi fyrir viðbyggingunni en hún aldrei reist.
Deiliskipulag gerir ráð fyrir opnum byggingarreit á lóðinni og hefð er fyrir bílageymslu á þessum stað. Ef samþykki eigenda aðliggjandi lóðar liggur fyrir þar sem að bílageymslan liggur að lóðarmörkum gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við byggingarleyfi sé veitt fyrir stækkuninni.

20.6 - 2103068 - Sunnuflöt 17 - dsk breyting

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.7 - 2102218 - Seinakur 6 -Umsókn um byggingarleyfi

Að mati skipulagsstjóra er innsend tillaga í samræmi við deiliskipluag Akra.

20.8 - 2101295 - Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

20.9 - 2104162 - Brekkubyggð 75 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um nýjar útidyr á suðurhlið raðhússin Brekkubyggð 75. Skipulagsstjóri bendir á að tillagan kalli á umsókn um byggingarleyfi sem útlitsbreyting. Þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í Brekkubyggð að neðanverðu skal vísa umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga. Með vísan í 3.mgr.sömu greinar fellir skipulagsstjóri grenndarkynningu niður þar sem að umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Þó skal bent á að samþykki eigenda á sömu lóð þarf ef gera á breytingar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.