Keldugata 12 áður 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (885). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir sem skipulagsnefnd telur ástæðu til að taka tillit til. (Mál nr. 2012166)
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1974). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna tillögu um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 14.
Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir sem skipulagsnefnd telur ástæðu til að taka tillit til.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd tekur undir athugasemdir um að tillagan samræmist ekki vel vistvænum áherslum deiliskipulags Urriðaholts né áherslum Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 um breidd innkeyrsla inn á bílastæði.
Í ljósi þess og andstöðu íbúa í götunni er tillögunni hafnað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Grenndarkynningu lýkur 31. mars 2021
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Eitt erindi með athugasemdum hefur borist. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði . Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir víkur af fundinum undir þessum lið.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
1. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskikipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Keldugata 14 og gerir ráð fyrir því að bílageymslur geti verið lokaðar að hluta. Tillögu vísað til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskiplagsins í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Setja skal ákvæði um að 3 bílageymslur næst byggingu verði opnar eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Grenndarkynna skal eigendum Keldugötu 9, 11,12 13 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar vegna fyrirspurnar sem laut að því hvort heimilað yrði að loka bílskýli sem skal vera opið samkvæmt deiliskipulagi.
Svar skipulagsnefndar: Nefndin tekur undir umsögn deiliskipulagshöfundar og leggur til að lögð verði fram fullnægjandi útfærsla og sótt um deiliskipulagsbreytingu hvað þetta atriði varðar.