1. fundur
1. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
14.01.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð í samræmi við áður samþykkta skipulagslýsingu sem hefur verið auglýst. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við lýsinguna. Markmið breytingarinnar er að skapa grundvöll fyrir deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að leiksskólalóð breytist í einnar hæðar fjölbýlishúsalóð sem ætluð er búsetukjarna fyrir fatlaða. Í ábendingum sem komið hafa fram hjá nágrönnum kemur fram sú ósk að svæðið verði skilgreint sem opið svæði eins og það hefur verið í raun frá því að hverfið byggðist. Skipulagsnefnd ítrekar mikilvægi þess að búsetuúrræðum verði fundinn góður staður í íbúðarbyggð og óbyggða svæðið við Brekkuás uppfyllir þau skilyrði mjög vel. Nýverið hefur verið gert ráð fyrir leikskóla á lóð við Lyngás og þannig hugað að þeirri þjónustu í Ásahverfi þar sem fyrir er leikskóli. Skipulagsnefnd samþykkir forkynningu tillögunnar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
02
Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir því að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás breytist í lóð fyrir fjölbýlishús sem ætlað er hreyfihömluðum. Skiplagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Þær breytingar hafa verið gerðar frá fyrri tillögu að lögun byggingarreits breytist í kjölfar samráðs við fjölskyldusvið um mögulegar útfærslur á byggingunni með tilliti til búsetunnar. Skipulagsnefnd samþykkir forkynningu tillögunnar í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún kynnt samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.
03
Vesturtún 38-40 - hækkun þaks -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Vesturtúns sem nær til parhúsalóðarinnar Vesturtún 38-40. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarks mænishæð hækkar um 70 cm. Skipulagsstjóri vísaði tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 44. gr. sömu laga. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt.
04
Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem nær til lóðarinnar Brúnás 12. Tillagan gerir ráð fyrir því að þakvirki og burðarveggur undir því fari lítillega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæða sé 20 cm hærri en G-kóti á hæðarblaði og vegghæð hærri hluta húss sé 40 cm hærri en miða má við í skilmálum. Skipulagsstjóri vísaði tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 44. gr. sömu laga.
Lögð fram gögn þar sem að allir aðilar sem grenndarkynning náði til hafa með áritun sinni lýst yfir því að þeir geri ekki athugasemdir við tillöguna. Fyrir mistök stendur í erindi með grenndarkynningu að G-kóti sé 43,3 mys (metrar yfir sjávarmáli) en rétt er að hann er 34,3 mys. Rétt hæð kom fram á uppdrætti sem var hluti grenndarkynntra gagna. Leiðréttist sú villa hér með.
Tillagan skoðast því samþykkt og er skipulagsstjóra heimilað að stytta tíma grenndarkynningar í samræmi við 3. mgr. 44. gr. ofangreindar laga.
05
Fyrirspurn. Lyngás 13 og 15. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Lyngáss 13 og 15 um hugmyndir að breytingum á deiliskipulagi. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Sólveig Helga Jóhannsdóttir sat ekki fundinn undir þessum lið.
06
Hraunhólar 8, breyting á deiliskipulagi Hraunholts eystra
Deiliskipulag lóðarinnar og annarra lóða sunnan Hraunhóla ræddar. Skipulagsnefnd telur skynsamlegra að skoða nánar möguleika á því að breyta deiliskipulagi lóðanna þannig að þar mætti reisa íbúðarhús með fleiri íbúðum sem gætu verið minni og af fjölbreyttari gerð. Ennfremur þarf að huga að áhrifum fyrirhugaðrar stofnbrautar milli Engidals og Reykjanesbrautar á byggð við Hraunhóla. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til skoðunar.
07
Garðatorg 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir kaffihús á jarðhæð hússins að Garðatorgi 4. Óskað er eftir því að heimilað verði að setja svæði fyrir borð og stóla utan lóðarmarka við Vífilsstaðaveg. Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
08
Asparlundur 19 - stækkun eignar baka til - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits raðhúss þannig að hægt verði að byggja yfir innskot við stofu.
Vísað til umsagnar arkitekts húsanna og deiliskipulagsráðgjafa.
09
Keldugata 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar vegna fyrirspurnar sem laut að því hvort heimilað yrði að loka bílskýli sem skal vera opið samkvæmt deiliskipulagi.
Svar skipulagsnefndar: Nefndin tekur undir umsögn deiliskipulagshöfundar og leggur til að lögð verði fram fullnægjandi útfærsla og sótt um deiliskipulagsbreytingu hvað þetta atriði varðar.
10
Hraungata 7 - DSK breyting
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að leyfilegur þakhalli verði 0-15 gráður í stað 15-45 og að heimilaðar verða 4h hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er að hafa lyftuhús.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12 og 14 og Holtsvegar 41 og 43.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
11
Keldugata 2, dsk br Urr.vesturhluti
Lögð fram tillaga að breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluti að lokinni auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
12
Umferðaröryggisáætlun
Berglind Hallgrímsdóttir og Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir hjá Eflu verkfræðistofu kynntu tillögu að umferðaröryggisáætlun Garðabæjar. Skipulagsnefnd samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
13
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 16:00
13.1 - 2012104 - Alþjóðaskólinn. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Grunda og Ása sem nær til skólalóðarinnar Þórsgrund 2. Tillagan gerir ráð fyrir breyttum byggingarreit sem lagar sig að tillögu Alþjóðaskólans fyrir skólabyggingu. Hámarksbyggingarmagn á lóðinni er óbreytt, 1600 m2 sem er í samræmi við ákvæði í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-3030. Tillagan gerir ráð fyrir því að 2 hæða hluti skólabyggingarinnar verði næst Vífilsstaðavegi en ekki á öllum byggingarreit eins og deiliskiplag heimilar.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Ægisgrundar 2,3,4,5,6,7,8,9,10, 11 og 12, Marargrundar 1,2,3,4,6,5,7,8,9,10, 11 og 12, Skeiðaráss 2,4,6,8,10 og 12 og Lækjaráss 1,3 og 5.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
13.2 - 2012035 - Brúnás 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi á lóðinni Brúnás 12. Að mati skipulagsstjóra er vegghæð hærri hluta húss um 40 cm hærri en miðað er við út frá 5,4 m rishæð. Gólfkóti bílageymslu er samkvæmt umsókn í uppgefinni hæðarlegu á hæðarblaði 34,3 mys en aðalgólf 20 cm hærra. Samkvæmt deiliskipulagi miðast hæð aðalgólfs við gólfkóta aðalhæðar. Hærri hluti húss fer einnig lítillega út fyrir byggingarreit til vesturs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í sarmræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslagar nr 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal eigendum Brúnáss 10,11,13,14 og 15 og Brekkuáss 7 og 9.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
13.3 - 2011516 - Suðurhraun 2a - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits til norðvesturs um 5 metra. Fjarlægð lóðarmarka er 8,5 metrar frá byggingarreit og gert er ráð fyrir stórum hurðum fyrir aðkomu vöruflutninga og bifreiða.
Svar skipulagsstjóra: Tillagan víkur hvað varðar byggingarreit og aðkomu frá ákvæðum deiliskipulags Molduhrauns. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að sótt verði um deiliskipuulagsbreytingu hvað stækkun byggingarreits varðar en gerir athugasemd við að aðkoma fyrir vöruflutninga verði frá þeirri hlið sem snýr að Suðurhrauni 4 þar sem svigrúm innan lóðar verður takmarkað með þessum hætti. Sýna þarf lóðarmörk á uppdrætti réttar fjarlægðir miðað við mæliblað. Útbúa þarf breytingaruppdrátt deiliskipulags.
13.4 - 2011212 - Maríugata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að vikið sé frá ákvæðum varðandi frágang þaks á inndregnum efstu hæðum. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar vegna Holtsvegar 37 og 39 þann 30.júní 2016 (málsnr.1606458) gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að vikið sé frá ákvæði 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi við veitingu byggingarleyfis þar sem að óverulegt frávik sé að ræða þar sem að hagsmunir nágranna skerðast ekki sbr. 3.mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
13.5 - 2010484 - Kinnargata 31-33 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn vegna umsóknar um byggingarleyfi þar sem að fjórðungur þaks er með þakhalla en deiliskipulag kveður á um helming. Umsögn deiliskipulagshöfunda liggur fyrir.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að vikið sé frá ákvæði 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi við veitingu byggingarleyfis þar sem að óverulegt frávik sé að ræða þar sem að hagsmunir nágranna skerðast ekki sbr. 3.mgr. sömu greinar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
13.6 - 2009416 - Hraungata 44 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að nota þakpappa sem ysta lag húsþaks. Með vísan í afgreiðslu skipulagsnefndar vegna Víkurggötu 23 (málsnr.2010028)þann 29.október sl. telur skipulagsstjór að þakpappi getur vel verið í samræmi við markmið deiliskipulagsins um gott yfirbragð byggingar ef vandað er til útfærslunnar og að litur sé í gráskala eða dökkra jarðlita. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis fyrir Hraungötu 44 verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr.sömu greinar hvað þakpappa sem ysta byggingarefni varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
13.7 - 2012166 - Keldugata 14 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að loka opnum bílgeymslum á lóð. Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda.
13.8 - 2003218 - Heiðarlundur 18 - breyting - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem að mænir fer 20 cm upp fyrir leyfilega hámarkshæð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að vikið sé frá ákvæði 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi við veitingu byggingarleyfis þar sem að óverulegt frávik sé að ræða þar sem að hagsmunir nágranna skerðast ekki sbr. 3.mgr. sömu greinar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.