Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda varðandi lóðina við Asparlund 11-21.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
13. (1971). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Lunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna raðhúsalóðanna við Asparlund 11-21.
Tillaga var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreita raðhúslengjunnar Asparlundur 11-21 (6 íbúðareiningar). Stækkun byggingareita er sem nemur innskotum að sunnanverðu.
Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
1. fundur
Lögð fram umsögn arkitekts hússins sem leggst ekki gegn tillögunni á meðan að viðbyggingin er dregin inn frá húshlið og að samræmis verði gætt ef fleiri eigendur raðhússlengjunnar muni óska eftir sambærilegri breytinu.
Skipulagsstjóri vísar tillögu sem gerir ráð sömu stækkun byggingarreits fyrir öll hús raðhúslengunnar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum raðhúslengjunnar sem og Þrastalundar 20, Asparlundar 9 og 10, Skógarlundar 11 og 13.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
1. fundur
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits raðhúss þannig að hægt verði að byggja yfir innskot við stofu.
Vísað til umsagnar arkitekts húsanna og deiliskipulagsráðgjafa.