13. (1971). fundur
13. (1971). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
13.04.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Í upphafi fundar bauð formaður Svanhildi Þengilsdóttur, nýráðinn sviðsstjóra fjölskyldusviðs, velkomna á fund bæjarráðs.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála en núverandi reglugerðir um takmörkun á samkomum og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar gilda til og með 15. apríl nk.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og sviðsstjóri fjölskyldusviðs fóru nánar yfir stöðu mála á sínum sviðum.
Starfsemi bæjarskrifstofa er hólfaskipt og hluti starfsmanna í fjarvinnu. Allir fundir eru fjarfundir nema einstaka viðtalsfundir sem eru í Sveinatungu.
Bæjarráð vill koma á framfæri mikilvægi þess að allt íþróttastarf barna og ungmenna og afreksstarf meistaraflokka verði leyft og leitað verði leiða til að opna sundstaði fyrir einstaklinga sem hafa verið bólusettir. Bæjarráð telur einnig rétt að skoða möguleika á að opna félagsstarf eldri borgara fyrir þá sem hafa verið bólusettir.
Málsnúmer 1911231
02
Víkurgata 16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurbirni Inga Magnússyni, kt. 260976-3039, leyfi til að byggja einbýlishús við Víkurgötu 16.
Málsnúmer 2101238
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að bygging við lóðarmörk lóðarinnar við Lindarflöt 10 verði 9,6 m á lengd en í skilmálum er heimiluð lengd 7,5 m. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Lindarflatar nr. 7, 8, 9, 11, 12 og Smáraflatar nr. 42 og 44.
Málsnúmer 2002267
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Hraungötu 7. Tillaga var grenndarkynnt og barst athugasemd frá íbúum við Holtsveg.
Skipulagsnefnd samþykkir, til að koma á móts við athugasemdir íbúa, að gera eftirfarandi breytingu við tillögu sem kynnt var. „Svalagangur: Veggir stigagangs á milli húshluta skal vera lokaður á þeirri hlið sem snýr að Holtsvegi“
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt bæjarstjórnar skal kynnt þeim sem gerðu athugasemdir.
Málsnúmer 2012104
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að falla frá tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem tillögunni var mótmælt.
Málsnúmer 2102107
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands.
Lögð fram.
Málsnúmer 2101092
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda varðandi lóðina við Asparlund 11-21.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Lunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna raðhúsalóðanna við Asparlund 11-21.
Tillaga var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2012153
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðanna við Maríugötu 5-7.
Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2011499
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna.
Á fundi skipulagsnefndar var gerð grein fyrir mögulegum breytingum á gatnamótum á brú við Arnarnesveg og Hafnarfjarðarveg þannig að afrein til suðurs verði tekin af og í þess stað komi ljósastýring á beygju til suðurs.
Lagður fram tölvupóstur með undirskriftum fjölmargra íbúa á Arnarnesi þar sem fyrirhugaðri breytingu er harðlega mótmælt.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til tækni- og umhverfissviðs og að við hönnun undirgangna verði tekið mið að því að hafa afrein af Arnarnesvegi til suðurs óbreytta
Málsnúmer 2007072
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vinnureglur um veggi og girðingar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um útgáfu á almennum leiðbeiningum til íbúa um veggi og girðingar á lóðum.
Málsnúmer 2103425
11
Opnun tilboða í eftirlit með gatnagerð í Kumlamýri.
Eftirfarandi tilboð barst í eftirlit með framkvæmdum við gatnagerð í Kumlamýri.
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 13.485.000
Kostnaðaráætlun kr. 16.711.250
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Hnit verkfræðistofu hf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2103137
12
Skilmálar um úthlutun hesthúsalóða við Kjóavelli.
Bæjarráð samþykkir úthlutunar og söluskilmála hesthúsalóða á Kjóavöllum og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðir við Sunnuvelli og Æsuvelli til úthlutunar.
Málsnúmer 2011213
13
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru á ákvörðun um óverulega breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns vegna lóðarinnar við Aratún 36.
Málsnúmer 2103554
14
Bréf Fagraáss ehf. um uppbyggingu í landi Sviðholts á Álftanesi (Krókur), dags. 25.03.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902222
15
Skilmálar forvals vegna sölu lóða í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir auglýsingu og skilmála forvals vegna þjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Ingvar Arnarson, situr hjá við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2103603
16
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi breytingar á ýmsum lögum um málefni sveitarfélaga í tilefni af Covid-19, dags. 31.03.21.
Málsnúmer 2102327
17
Tillaga um tvöfalda mönnun á næturvöktum í skammtímadvöl á Móaflöt.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að tveir starfsmenn séu á næturvakt í skammtímadvöl á Móaflöt til að tryggja öryggi barna og starfsmanna.
Málsnúmer 2104062
18
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi umsóknarfrest um styrki til Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 26.03.21.
Málsnúmer 2103591
19
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi aðgerðaráætlun sveitarfélaga til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf og heimili, dags. 30.03.21.
Málsnúmer 2103553
20
Tilkynning frá umhverfisráðuneytinu varðandi uppfærslu á viðauka við úrgangsforvarnir, dags. 29.03.21.
Málsnúmer 2103552
21
Bréf Samgöngustofu varðandi beiðni um umsögn um staðsetningu ökutækjaleigu að Vesturhrauni 2., dags. 26.03.21.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Gísla Jónssyni, kt. 240764-2889 f.h. Króks ehf., kt. 700109-0380 verði veitt leyfi til að starfrækja ökutækjaleigu að Vesturhrauni 2, 210 Garðabæ. Í umsókn kemur fram að sótt er um leyfi fyrir fimm ökutækjum í útleigu.
Málsnúmer 2104009
22
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um almannavarnir (almannavarnastig o.fl.), 622. mál., dags. 27.03.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104106
23
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030, 645. mál., dags. 07.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104115
24
Ársreikningur Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2020.
Málsnúmer 2104087
25
Ársreikningur 19. júní sjóðs fyrir árið 2020.
Málsnúmer 2104124
26
Ársreikningur Heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2020
Málsnúmer 2103406
27
Bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Brynju Hússjóðs ÖBÍ um stofnframlag, dags. 15.03.21.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn Brynju Hússjós ÖBÍ um stofnframlag að fjárhæð kr. 8.774.400 vegna kaupa á einni íbúð.
Málsnúmer 2103405
28
Bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Bjargs íbúðafélags um stofnframlag, dags. 15.03.21.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja umsókn Bjargs íbúðafélags hses. um stofnframlag að fjárhæð kr. 24.555.732 vegna fjölgunar íbúða um fimm að Maríugötu 5.
Málsnúmer 2104120
29
Kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.
Bæjarráð hafnar tilboðinu og vísar til bæjarstjóra að skoða nánar ástand hússins og möguleika á nýtingu þess.
Málsnúmer 2012333
30
Ársreikningur Garðabæjar 2020 - stjórnsýsluskoðun.
Stjórnsýsluskoðun lögð fram.
Málsnúmer 2104129
31
Tillaga Garðabæjarlistans um kynningu á stöðu og innleiðingu á úrgangs- og innkaupastefnu Garðabæjar.
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
„Garðabæjarlistinn leggur til að fram fari kynning í bæjarráði á stöðu og innleiðingu á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Jafnframt að samhliða verði farið yfir stöðu Garðabæjar í öllum aðgerðum í umhverfis og loftslagsmálum.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirbúa kynningu í bæjarráði fyrir bæjarfulltrúa um stöðu málsins.
Málsnúmer 2103469
32
Bókun skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar vegna lokunar Garðahraunsvegar við Herjólfsbraut, dags. 09.04.21.
Lögð fram.