Alþjóðaskólinn. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (884). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að falla frá tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem tillögunni var mótmælt. (Mál nr. 2012104)
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1971). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að falla frá tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans. Tillagan var grenndarkynnt og bárust athugasemdir frá íbúum þar sem tillögunni var mótmælt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit skólalóðar við Þórsgrund þar sem fyrirugað er að reisa byggingu Alþjóðaskólans.
Íbúar í nágrenni skólans hafa andmælt breytingartillögunni.
Með vísan í athugasemdir íbúa er breytingartillögunni hafnað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni grenndarkynningu. Athugsemdir sem borist hafa lagðar fram.
Skipluagsnefnd beinir því til skipluagsstjóra að funda með þeim sem sent hafa inn athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
13. fundur
Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu deiliskiplags Ása- og Grunda sem gerir ráð fyrir breyttri lögun byggingarreits skólabyggingar á lóð fyrir samfélagsþjónustu við Þórsgrund sem ákveðið hefur verið að ráðstafa til starfsemi Alþjóðaskólans. Tillagan hefur verið unnin í samráði við Alþjóðaskólann. Vísað til skipulagsstjóra til úrvinnslu.