Beint í efni

6. (884). fundur

15.04.2021
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (884). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.04.2021

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir
  • Gunnar Valur Gíslason
  • Jóna Sæmundsdóttir
  • Almar Guðmundsson
  • Björg Fenger
  • Gunnar Einarsson
  • Sara Dögg Svanhildardóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Harpa Þorsteinsdóttir

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.

Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. mars 2021 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2103603

01

Tillaga um að fundir bæjarstjórnar og nefnda geti verið með fjarfundarbúnaði.

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnarlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 31. júlí 2021, sbr. auglýsing nr. 354/2021, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. 1. mgr. 131 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 22/2021"

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2103040F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 23/3 ´21.

Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi rekstur leikskólanna Litlu Ása og Hnoðraholts á Vífilsstöðum og 23. tl., tillögu Garðabæjarlistans um flýtingu frumdraga á leið D í samgöngusáttmála Betri samgangna.

Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi rekstur leikskólanna Litlu Ása og Hnoðraholts á Vífilsstöðum og 23. tl., tillögu Garðabæjarlistans um flýtingu frumdraga á leið D í samgöngusáttmála Betri samgangna og svaraði fyrirspurnum.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 11. tl., bréf Hjallastefnunnar varðandi rekstur leikskólanna Litlu Ása og Hnoðraholts á Vífilsstöðum og almennt um stöðu leikskólamála.

Gunnar Einarsson, ræddi almennt um stöðu leikskólamála.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2103051F

03

Fundargerð bæjarráðs frá 30/3 ´21.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., bókun skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar vegna lokunar Garðahraunsvegar (Gamla Álftanesvegar) við Herjólfsbraut, 8. tl., tillögu að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra og 13. tl., svæði fyrir matjurtagarða í bæjarlandinu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., bókun skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar vegna lokunar Garðahraunsvegar (Gamla Álftanesvegar) við Herjólfsbraut, 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021 og 8. tl., tillögu að reglum Garðabæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021.

Gunnar Einarsson, ræddi 12. tl., tillögu skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2021 og 6. tl., bókun skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar vegna lokunar Garðahraunsvegar (Gamla Álftanesvegar) við Herjólfsbraut.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2104007F

04

Fundargerð bæjarráðs frá 13/4 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., COVID19 - neyðarstig almannavarna. Almar bauð Svanhildi Þengilsdóttur, nýráðnum sviðsstjóra fjölskyldusviðs velkomna til starfa.

Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans, 27. tl,. bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Brynju Hússjóðs ÖBÍ um stofnframlag, 28. tl., bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Brynju íbúðafélags um stofnframlag og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans, 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands, 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands og gerði grein fyrir viðræðum við landeigendur og upplýsti að rætt hafi verið um möguleika á að hefja skipulagsvinnu við atvinnusvæðið og vegtengingar við Kauptún og Reykjanesbraut. Þá ræddi Gunnar 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna.

Ingvar Arnarson, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Fundargerðin sem er 32 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2103032F

05

Fundargerð fjölskylduráðs frá 17/3 ´21.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsstoð 2018-2021 og 5. tl., frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu barna.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsstoð 2018-2021 og 5. tl., frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu barna.

Björg Fenger, ræddi 4. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsstoð 2018-2021.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsstoð 2018-2021 og 5. tl., frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu barna.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsstoð 2018-2021 og 5. tl., frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu barna og svaraði spurningum.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 5. tl., frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu barna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2103023F

06

Fundargerð leikskólanefndar frá 17/3 ´21.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020.

Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., innritun í leikskóla 2020

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2104010F

07

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 12/4 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., hugmyndahönnun minjagarðs við Hofsstaði og 6. tl., umsókn um styrk í Barnamenningarsjóð.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2103025F

08

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 18/3 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2103048F

09

Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/4 ´21.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., fyrirspurn um skiptingu lóðar við Nýjabæ og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Garðahverfið var deiliskipulagt árið 2013 í heild sinni og er þar um að ræða 79 hektara af u.þ.b. 420 hekturum Garðaholts. Samkvæmt aðalskipulagi Garðabæjar frá árinu 2018 hefur Garðahverfið verndarsjónarmið að leiðarljósi og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Áhersla er á menningar og náttúruminjar og að gera svæðið aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Garðahverfið fékk hverfisvernd árið 2017.“

Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., fyrirspurn um skiptingu lóðar við Nýjabæ og lagði til að bókun Baldurs Ó Svavarssonar, sem lögð var fram á fundi skipulagsnefndar verði fær til bókar í fundargerð bæjarstjórnar.

„Enn gerist það sem undirritaður óttaðist og varaði við þegar hið gildandi skipulag fyrir Garðahverfi var samþykkt. Stóraukin ásókn og fyrirspurnir um uppskiptingu lóða, um viðbótarlóðir og frávik frá skilmálum. Þeim á bara eftir að fjölga. Fulltrúi Garðabæjarlistans í skipulagsnefnd ítrekar því enn fyrri bókanir á umliðnum tveimur tímabilum og mótmælir enn og aftur þeim áherslum og vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar við gerð skipulags fyrir svokallað Garðahverfi á Garðaholti einn síðasta skikinn í bænum sem ber einhverja byggð.

Enn skal því ítrekuð sú ósk að það landrými sem lagt er undir í þessu verkefni verði verðmetið og það mat kynnt fyrir skipulagsnefnd, þetta eru jú fjármunir bæjarbúa. Enn er ítrekað og lagt til að beðið verði með allar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi á þessu svæði þar til að skipulag fyrir svæðið í heild liggur fyrir.

Ekki þarf að fjölyrða um sögu og menningu á Garðaholti. Sú staðreynd er flestum kunn. Skylt er að huga að þessari sögu, minjum og menningarverðmætum henni tengdri. Það verður þó ekki gert með því að frysta tímann á staðnum. Enn er því ítrekað og lagt til að bærinn marki sér stefnu varðandi uppbyggingu og þróun þessa bæjarhluta alls áður en hann er hlutaður niður með þessum hætti í smærri bútasaumuð verkefni og hugað verði að afleiðingum þess byggðamynsturs sem þarna verður boðið upp á.

Með sama framhaldi stendur ekki steinn yfir steini yfir þessari svokölluðu "varðveislu byggðamynsturs 20. aldar“ sem ku vera markmið gildandi deiliskipulags. Nær verði því að kalla skipulagið "varðveislu skipulagsklúðurs 21. aldar", ef svo fram heldur sem horfir."

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2103035F

10

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 24/3 ´21.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., umsóknir og úthlutanir úr þróunarsjóði grunnskóla. Sigríður Hulda þakkaði umsækjendum fyrir þeirra góðu umsóknir og fulltrúum í skólanefnd og starfsmönnum þakkaði hún fyrir vinnu við að flokka og greina umsóknir.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101049F

11

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 26/1 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2103053F

12

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 30/3 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101447

13

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/3 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102108

14

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17/3 ´21.

Björg Fenger, ræddi starfsemi skíðasvæðanna og aðstöðu fyrir gönguskíðaiðkun.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2102176

15

Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 26/2 og 12/3 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., fg, 26/2 ´21, ársreikning Sorpu bs. fyrir árið 2020, 3. tl., fg. 12/3 ´21, minnisblað um aukna flokkun og gjaldtökuheimildir endurvinnslustöðvanna og 2. tl., fg. 12/3 ´21, kynningu á vinnu við endurskoðun á gjaldskrá Sorpu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101346

16

Fundargerð stjórnar SSH frá 31/3 ´21.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1811108

17

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 10/3 ´21.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1 tl., jarðhræringar á Reykjanesskaga.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2101300

18

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12/3 ´21.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., undirbúning að útvistun á akstri.

Björg Fenger, ræddi 4. tl., undirbúning að útvistun á akstri og 7. tl., önnur mál - aðgengi fólks með fötlun í strætisvagna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., undirbúning að útvistun á akstri, 7. tl., önnur mál - aðgengi fólks með fötlun í strætisvagna.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2104190

19

Tillaga um að útfæra sumarstörf fyrir ungmenni þar sem markmiðið er að varðveita sögulegar myndir frá Garðabæ.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Gunnari Val Gíslasyni.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra, í samráði við menningarfulltrúa og menningar- og safnanefnd, að útfæra sumarstörf fyrir ungmenni þar sem markmiðið er að varðveita sögulegar myndir frá Garðabæ. Það verði annars vegar gert með því að safna saman myndum og myndefni úr Garðabæ frá fyrri tíð og hins vegar með því að gera efnið aðgengilegt fyrir almenning og ekki síst skólanemendur."

Greinargerð:

Í Garðabæ viljum við tryggja sem allra best að sagan og menningin varðveitist sem best og gera íbúum, yngri sem eldri, kleift að upplifa samfélagið eins og það var áður.

Garðabær á verðmætt ljósmyndasafn sem mikilvægt er að sé aðgengilegt, það er m.a. gert á ljósmyndavef bæjarins sem er í stöðugri þróun. Þá geyma söguritin Saga Garðabæjar og Álftanessaga margar frábærar myndir sem lýsa vel húsagerð, skipulagi og mannlífi á fyrri árum.

Haustið 2018 efndu menningar- og safnanefnd og Bókasafn Garðabæjar til ljósmyndasýningarinnar „Garðabær 2018 ? 100 ára fullveldi Íslands“ og óskuðu eftir ljósmyndum frá íbúum bæjarins úr daglegu lífi í Garðabæ í tilefni af aldaramæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands 1. desember það sama ár. Sýningin endurspeglaði þann auð sem býr í gömlum myndum.

Bæjarbúar sjálfir eiga í sínum fórum mikið safn mynda, sem mikilvægt er að varðveita með eins skipulegum hætti og unnt er. Í vetur settu nokkrir bæjarbúar á stofn Facebook hópinn „Garðahreppur fyrir 1980, myndir af húsum, fólki, og saga þeirra“. Á þeim vettvangi hafa birst margar mjög áhugaverðar myndir sem sýna vel hús, hverfi, landslag og mannlíf eins og það var í Garðahreppi. Það er við hæfi að Garðabær styðji við þetta góða framtak íbúanna með því að leggja sitt af mörkum til að myndefni úr Garðabæ varðveitist á skipulegan hátt og verði aðgengilegt bæjarbúum.

Það er sannfæring okkar að öflugt ungt fólk í sumarstarfi hjá bænum geti lagt sitt af mörkum til að gamalt þjóðfræðilegt efni lifi áfram. Eins teljum við að unga fólkið hafi hugmyndaauðgi og kraft til að finna nýjar og spennandi leiðir til að miðla þessu efni og halda því lifandi.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1909412

20

Reglur Garðabæjar um stuðningsþjónustu.

Bæjarstjórn samþykkir reglur Garðabæjar um stuðningsþjónustu.

Málsnúmer 2012333

21

Ársreikningur Garðabæjar 2020 (síðari umræða)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings.

Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2020.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.

Álaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls. Áslaug Hulda færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra hlut í góðri niðurstöðu ársreiknings.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Fyrir hönd fulltrúa Garðabæjarlistans í bæjarstjórn legg ég fram eftirfarandi bókun:

Það er virkilega gott hversu vel ársreikningur Garðabæjar kemur út og að staðan sé í raun sterkari en áætlað var. Við erum með töluverða lántöku til að fjárfesta í innviðum og er það mikilvægt. Það er ljóst að við höfum svigrúm til að framkvæma en frekar og að okkar mati raun skylda Garðabæjar á þessum tímum. Við uppbyggingu viljum við að hugað verði að nauðsyn þess að fjölga íbúðum í okkar félagslega kerfi ásamt því að byrja að hanna leik- og grunnskóla fyrir þau nýju hverfi sem fara fljótlega í uppbyggingu, þar viljum við sjá Garðabæ reisa leik- og grunnskóla um leið og hverfin fara í uppbyggingu. Við þurfum að vera skrefi á undan þegar að íbúum fjölgar. Við höfum því miður brugðist of seint við hvað varðar fjölgun leikskólabarna og þurfum að bæta úr því. Einnig teljum við mikilvægt að við bregðumst sem allra fyrst við þeim ábendingum sem hafa komið frá endurskoðendum."

Björg Fenger, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2020 lýsir mjög sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Rekstrarafkoma ársins er 774 m.kr. eða 234 m.kr. betri en áætlun hafði gert ráð fyrir, sem verður að teljast einstaklega góður árangur á fordæmalausum Covid tímum. Rekstrartekjur eru 4% hærri en áætlun gerði ráð fyrir, en rekstrargjöld fóru 2,6% fram úr fjárhagsáætlun. Mikil óvissa var allt árið um þróun útsvartekna og meiri sveiflur milli mánaða en áður hafa þekkst og er því niðurstaða útsvarstekna ársins mikið ánægjuefni.

Traust og sterk fjárhagsstaða er undirstaða þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta þjónustu við fjölgun nýrra íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Framkvæmt var fyrir 3.516 m.kr. á árinu til að styrkja innviðauppbyggingu, skólabyggingar, íþróttamannvirki, gatna- og stígagerð, vatns og fráveitumannvirki. Allur rekstrarafgangur ársins auk hóflegrar lántöku var nýttur til fjárfestinga.

Allar kennitölur í rekstri bera vott trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 71% og skuldahlutfall 100% en var 104% árið 2019. Veltufé frá rekstri er 2.605 m.kr. sem er um 14,4% í hlutfalli við rekstrartekjur, en var 12,5% árið 2019".

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2020 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.