Beint í efni

Tillaga um að útfæra sumarstörf fyrir ungmenni þar sem markmiðið er að varðveita sögulegar myndir frá Garðabæ.

Málsnúmer 2104190

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (884). fundur

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Gunnari Val Gíslasyni.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra, í samráði við menningarfulltrúa og menningar- og safnanefnd, að útfæra sumarstörf fyrir ungmenni þar sem markmiðið er að varðveita sögulegar myndir frá Garðabæ. Það verði annars vegar gert með því að safna saman myndum og myndefni úr Garðabæ frá fyrri tíð og hins vegar með því að gera efnið aðgengilegt fyrir almenning og ekki síst skólanemendur."

Greinargerð:
Í Garðabæ viljum við tryggja sem allra best að sagan og menningin varðveitist sem best og gera íbúum, yngri sem eldri, kleift að upplifa samfélagið eins og það var áður.
Garðabær á verðmætt ljósmyndasafn sem mikilvægt er að sé aðgengilegt, það er m.a. gert á ljósmyndavef bæjarins sem er í stöðugri þróun. Þá geyma söguritin Saga Garðabæjar og Álftanessaga margar frábærar myndir sem lýsa vel húsagerð, skipulagi og mannlífi á fyrri árum.
Haustið 2018 efndu menningar- og safnanefnd og Bókasafn Garðabæjar til ljósmyndasýningarinnar „Garðabær 2018 ? 100 ára fullveldi Íslands“ og óskuðu eftir ljósmyndum frá íbúum bæjarins úr daglegu lífi í Garðabæ í tilefni af aldaramæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands 1. desember það sama ár. Sýningin endurspeglaði þann auð sem býr í gömlum myndum.
Bæjarbúar sjálfir eiga í sínum fórum mikið safn mynda, sem mikilvægt er að varðveita með eins skipulegum hætti og unnt er. Í vetur settu nokkrir bæjarbúar á stofn Facebook hópinn „Garðahreppur fyrir 1980, myndir af húsum, fólki, og saga þeirra“. Á þeim vettvangi hafa birst margar mjög áhugaverðar myndir sem sýna vel hús, hverfi, landslag og mannlíf eins og það var í Garðahreppi. Það er við hæfi að Garðabær styðji við þetta góða framtak íbúanna með því að leggja sitt af mörkum til að myndefni úr Garðabæ varðveitist á skipulegan hátt og verði aðgengilegt bæjarbúum.
Það er sannfæring okkar að öflugt ungt fólk í sumarstarfi hjá bænum geti lagt sitt af mörkum til að gamalt þjóðfræðilegt efni lifi áfram. Eins teljum við að unga fólkið hafi hugmyndaauðgi og kraft til að finna nýjar og spennandi leiðir til að miðla þessu efni og halda því lifandi.

Tillagan samþykkt samhljóða.