Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 13/4 ´21.

Málsnúmer 2104007F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (884). fundur

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., COVID19 - neyðarstig almannavarna. Almar bauð Svanhildi Þengilsdóttur, nýráðnum sviðsstjóra fjölskyldusviðs velkomna til starfa.

Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans, 27. tl,. bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Brynju Hússjóðs ÖBÍ um stofnframlag, 28. tl., bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi staðfestingu á umsókn Brynju íbúðafélags um stofnframlag og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar Alþjóðaskólans, 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands, 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi erindi um uppbyggingu og skipulag Setbergslands og gerði grein fyrir viðræðum við landeigendur og upplýsti að rætt hafi verið um möguleika á að hefja skipulagsvinnu við atvinnusvæðið og vegtengingar við Kauptún og Reykjanesbraut. Þá ræddi Gunnar 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna og 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á afrein á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Arnarnesvegar og gerð undirgangna.

Ingvar Arnarson, ræddi 29. tl., kauptilboð Reir ehf. í fasteignina að Holtsbúð 87.

Fundargerðin sem er 32 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.