Tillaga um að fundir bæjarstjórnar og nefnda geti verið með fjarfundarbúnaði.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (884). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 3. mgr. 17.gr. sveitarstjórnarlaga þar sem áskilnaður er um miklar fjarlægðir eða erfiðar samgöngur innan sveitarfélagsins, sbr. 1. tl. í auglýsingu ráðherra. Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. 5. tl. í auglýsingu ráðherra. Samþykkt þessi gildir til 31. júlí 2021, sbr. auglýsing nr. 354/2021, um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. 1. mgr. 131 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, sbr. lög nr. 22/2021"
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1971). fundur
Lögð fram.