Ársreikningur Garðabæjar 2020 (síðari umræða)
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (884). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings.
Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2020.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Álaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls. Áslaug Hulda færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra hlut í góðri niðurstöðu ársreiknings.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fyrir hönd fulltrúa Garðabæjarlistans í bæjarstjórn legg ég fram eftirfarandi bókun:
Það er virkilega gott hversu vel ársreikningur Garðabæjar kemur út og að staðan sé í raun sterkari en áætlað var. Við erum með töluverða lántöku til að fjárfesta í innviðum og er það mikilvægt. Það er ljóst að við höfum svigrúm til að framkvæma en frekar og að okkar mati raun skylda Garðabæjar á þessum tímum. Við uppbyggingu viljum við að hugað verði að nauðsyn þess að fjölga íbúðum í okkar félagslega kerfi ásamt því að byrja að hanna leik- og grunnskóla fyrir þau nýju hverfi sem fara fljótlega í uppbyggingu, þar viljum við sjá Garðabæ reisa leik- og grunnskóla um leið og hverfin fara í uppbyggingu. Við þurfum að vera skrefi á undan þegar að íbúum fjölgar. Við höfum því miður brugðist of seint við hvað varðar fjölgun leikskólabarna og þurfum að bæta úr því. Einnig teljum við mikilvægt að við bregðumst sem allra fyrst við þeim ábendingum sem hafa komið frá endurskoðendum."
Björg Fenger, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2020 lýsir mjög sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Rekstrarafkoma ársins er 774 m.kr. eða 234 m.kr. betri en áætlun hafði gert ráð fyrir, sem verður að teljast einstaklega góður árangur á fordæmalausum Covid tímum. Rekstrartekjur eru 4% hærri en áætlun gerði ráð fyrir, en rekstrargjöld fóru 2,6% fram úr fjárhagsáætlun. Mikil óvissa var allt árið um þróun útsvartekna og meiri sveiflur milli mánaða en áður hafa þekkst og er því niðurstaða útsvarstekna ársins mikið ánægjuefni.
Traust og sterk fjárhagsstaða er undirstaða þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta þjónustu við fjölgun nýrra íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa. Framkvæmt var fyrir 3.516 m.kr. á árinu til að styrkja innviðauppbyggingu, skólabyggingar, íþróttamannvirki, gatna- og stígagerð, vatns og fráveitumannvirki. Allur rekstrarafgangur ársins auk hóflegrar lántöku var nýttur til fjárfestinga.
Allar kennitölur í rekstri bera vott trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 71% og skuldahlutfall 100% en var 104% árið 2019. Veltufé frá rekstri er 2.605 m.kr. sem er um 14,4% í hlutfalli við rekstrartekjur, en var 12,5% árið 2019".
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2020 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.
Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (883). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2020. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Gunnar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins.
Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lýsti ánægju með góða útkomu í ársreikningi Garðabæjar árið 2020 og færði starfsmönnum bæjarins þakkir bæjarstjórnar fyrir þeirra þátt í þessari góðu niðurstöðu.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð Garðabæjar
04
10. (1968). fundur
Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2020, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Lögð fram og kynnt drög að endurskoðunarskýrslu.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2020 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. mars 2021 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 15. apríl 2021.
Bæjarfulltrúarnir, Jóna Sæmundsdóttir og Gunnar Valur Gíslason, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
05
7. (1965). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2020 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.750.318.