7. (1965). fundur
7. (1965). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
23.02.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2012100
01
Sveinskotsvör 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mark-Húsum ehf., kt. 640206-2170, leyfi til að byggja einbýlishús að Sveinskotsvör 3.
Málsnúmer 2102266
02
Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytis varðandi tilnefningar í skólanefnd Fjölbrautaskólans í Garðabæ, dags. 10.02.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar sem fyrirhugaður er 4. mars 2021.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012333
03
Tillaga að afskriftum við gerð ársreiknings 2020.
Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2020 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 2.750.318.
Málsnúmer 2102371
04
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um áfengislög (sala á framleiðslustað), 504. mál., dags. 18.02.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2102361
05
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um brottfall laga, dags. 18.02.21.
Lögð fram.
Málsnúmer 2102312
06
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 16.02.21.
Bæjarráð samþykkir að veita UMF Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.962.073 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.
Málsnúmer 2102321
07
Bréf Golfklúbbsins Setbergs varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda, dags. 17.02.21.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 433.599 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.
Málsnúmer 2102331
08
Bréf Kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk, dags. 10.02.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2021.
Málsnúmer 2102373
09
Bréf Yrkjusjóðs varðandi umsóknir um styrk til ræktunar landsins, dags. 16.02.21.
Í bréfinu er því beint til forráðamanna grunnskóla að sjóðurinn óskar eftir umsóknum frá skólunum um styrk, í formi trjáplantna til gróðursetningar, fyrir komandi vor eða haust.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102374
10
Bréf Þjóðskjalasafns varðandi eftirlitskönnun með skjalavörslu og skjalastjórn, dags. 15.02.21.
Í bréfinu er kynnt fyrirhuguð könnun varðandi skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102372
11
Bréf Kópavogsbæjar varðandi forkynningu á vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og Reykjavíkur 2010-2030, vegna Borgarlínu, dags. 18.02.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102282
12
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi skýrslu um kosti og galla við að fela dómstólum verkefni kærunefnda á stjórnsýslustigi, dags. 16.02.21.
Lögð fram.
Málsnúmer 2101512
13
Svar við fyrirspurn um kostnað vegna auglýsinga.
Lagt fram svar við fyrirspurn um kostnað vegna auglýsinga.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2102351
14
Starfsáætlanir sviða 2021.
Starfsáætlanir sviða lagðar fram.
Fylgiskjöl
- Starfsáætlun mannauðs- og kjaradeildar 2021.pdf
- Starfsáætlun 2021 - tölvudeild.pdf
- Starfsáætluin 2021 - fjármáladeild.pdf
- Starfsáætlanir2021_upplýsingadeild (1).pdf
- Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2021.pdf
- Starfsáætlun fræðslu- og menningarsviðs fyrir 2021.pdf
- Starfsáætlun 2021 Tækni og Umhverfissvið_loka (1).pdf