Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og Reykjavíkur 2010-2030 vegna Borgarlínu.

Málsnúmer 2102372

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1968). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Skipulagsnefnd vísar til bókunar frá síðasta fundi sínum vegna tillagna um breytingar á deiliskipulag og aðalskipulagi Kópavogs vegna Traðarreits og Hamraborgar.
Þar segir: Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á að tillögurnar taki tillit til þess með hvaða hætti leiðir Borgarlínunnar til austurs og vesturs og norðurs og suðurs tengist saman á skilvirkan og skynsamlegan hátt og þá í sömu hæðarlegu. Einnig leggur nefndin áherslu á að vel unnar umferðarspár- og greiningar verði lagðar til grundvallar með það að markmiði að ekki verði dregið úr afkastagetu Hafnarfjarðarvegar með fyrirhugaðir uppbyggingu í Miðbæ Kópavogs.
Að öðru leyti gerir nefndin engar athugasemdir.

Bæjarráð Garðabæjar

03

7. (1965). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl