Beint í efni

Bókun skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar vegna lokunar Garðahraunsvegar við Herjólfsbraut, dags. 09.04.21.

Málsnúmer 2103469

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (1971). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Lagt fram.

Bæjarráð Garðabæjar

03

12. (1970). fundur

Bæjarráð lýsir yfir undrun á afstöðu skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þar sem ráðið mótmælir ákvörðun annars sveitarfélags við að framfylgja samþykktun skilmálum deiliskipulags. Lokun Garðahraunsvegar við gatnamót Herjólfsbrautar er í samræmi við ákvæði í deiliskipulagi sem gildir um íbúðarbyggð í Garðahrauni (Prýðahverfi) sem upphaflega var samþykkt árið 2003, sbr. breytingu frá árinu 2017. Það verður að teljast mjög eðlilegt og sanngjarnt gagnvart fjölmörgum íbúum Prýðahverfis að staðið sé við þær skuldbindingar sem fram koma í deiliskipulagi sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Það ætti að vera skipulags- og byggingarráði Hafnarfjarðar skiljanleg afstaða.

Aukning á umferð í norðurbæ Hafnarfjarðar er lang líklegast tilkomin vegna umferðar íbúa Hafnarfjarðar sem áður fóru til síns heima í gegnum íbúðahverfi í Garðabæ.

Fylgiskjöl