Hraungata 7 - DSK breyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (884). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Hraungötu 7. Tillaga var grenndarkynnt og barst athugasemd frá íbúum við Holtsveg.
Skipulagsnefnd samþykkir, til að koma á móts við athugasemdir íbúa, að gera eftirfarandi breytingu við tillögu sem kynnt var.
"Svalagangur: Veggur stigagangs á milli húshluta skal vera lokaður á þeirri hlið sem snýr að Holtsvegi".
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt bæjarstjórnar skal kynnt þeim sem gerðu athugasemdir. (Mál nr. 2002267)
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (1971). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lóðarinnar við Hraungötu 7. Tillaga var grenndarkynnt og barst athugasemd frá íbúum við Holtsveg.
Skipulagsnefnd samþykkir, til að koma á móts við athugasemdir íbúa, að gera eftirfarandi breytingu við tillögu sem kynnt var. „Svalagangur: Veggir stigagangs á milli húshluta skal vera lokaður á þeirri hlið sem snýr að Holtsvegi“
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýsing birt í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt bæjarstjórnar skal kynnt þeim sem gerðu athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu í annað sinn að lokinni grenndarkynningu. Lögð fram athugasemd sem borist hefur þar sem nágrannar lýsa yfir áhyggjum af því að lýsing í stigahúsi gæti verið truflandi.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi setningu verði bætt við sem ákvæði í byggingarskilmála undir liðnum "Svalagangur": Veggir stigagangs á milli húshluta skal vera lokaður á þeirri hlið sem snýr að Holtsvegi.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindri breytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr Skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
grenndarkynningu lýkur 01.03.21
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til fjölbýlishúslóðarinnar Hraungata 7 að lokinni grenndarkynningu. Innsendar athugasemdir lagðar fram.
Vísað til skoðunar hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni og umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
1. (879). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að leyfilegur þakhalli verður 0-15° í stað 15-45° og að heimilaðar verði 4 hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er lyftuhús. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og skal grenndarkynna tillöguna eigendum að Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12, og 14 og Holtsvegar 41 og 43. (Mál nr. 2002267)
Bæjarráð Garðabæjar
06
2. (1960). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að leyfilegur þakhalli verður 0-15° í stað 15-45° og að heimilaðar verði 4 hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er lyftuhús. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og skal grenndarkynna tillöguna eigendum að Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12, og 14 og Holtsvegar 41 og 43.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að leyfilegur þakhalli verði 0-15 gráður í stað 15-45 og að heimilaðar verða 4h hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er að hafa lyftuhús.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12 og 14 og Holtsvegar 41 og 43.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.