2. (1960). fundur
2. (1960). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
19.01.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Lögð fram stöðuskýrsla almannavarna, dags. 15. janúar sl. þar sem upplýst er um að nýjar reglur um takmörkun á samkomum o.fl. tóku gildi 13. janúar sl. og gilda til 17. febrúar nk.
Breytingar á takmörkun á samkomum vegna farsóttar eru að í stað þess að 10 geti komið saman þá mega nú 20 einstaklingar koma saman. Tilslökunin nær einnig til íþróttastarfs fullorðinna en áður gat einungis afreksíþróttafólk og börn fædd 2005 og síðar stundað sínar íþróttir. Nú geta allir stundað íþróttir innan ákveðinna marka, svo sem vegna fjöldatakmarkana og reglna sem sérsambönd setja sér og með tilliti til sóttvarna. Líkamsræktarstöðvar geta einnig opnað fyrir hópa með ákveðnum skilyrðum. Sviðslistir og sitjandi menningarstarf getur hafist með ákveðnum takmörkunum þó.
Bæjarstjóri upplýsti um að óbreyttar reglur gilda varðandi aðgang og takmarkanir á bæjarskrifstofunum.
Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór yfir stöðu mála á sínu sviði.
Bæjarfulltrúi, Gunnar Valur Gíslason, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 2012223
02
Ásbúð 62 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Önnu Sóleyju Birgisdóttur, kt. 090890-3289, leyfi til að byggja sólskála við núverandi hús við Ásbúð 62.
Málsnúmer 2009321
03
Kinnargata 31 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita OFG-Verki ehf., kt. 491101-2530, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötur 31.
Málsnúmer 2009320
04
Kinnargata 33 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita OFG-Verki ehf., kt. 491101-2530, leyfi til að byggja parhús að Kinnargötur 33.
Málsnúmer 2008424
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 38-40.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis er gerir ráð fyrir hækkun á mænishæð parhúsanna við Vesturtún 38-40. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2002267
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að leyfilegur þakhalli verður 0-15° í stað 15-45° og að heimilaðar verði 4 hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er lyftuhús. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og skal grenndarkynna tillöguna eigendum að Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12, og 14 og Holtsvegar 41 og 43.
Málsnúmer 2012035
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Brúnás 12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir að þakvirki og burðaveggur undir því fari lítilega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæðar verði 20 cm hærri en G-kóti á lóðarblaði tilgreinir og að vegghæð hærri hluta húss verði 40 cm hærri en fram kemur í skilmálum.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og hafa allir hlutaðeigendur áritað uppdrætti til samþykktar á tillögunni.
Málsnúmer 2005435
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis)vegna lóðarinnar við Brekkuás 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás 2 breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt.
Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2010333
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna breytingar á landnotkun lóðarinnar við Brekkuás 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til lóðarinnar við Brekkuás 2. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkunarreitur svæðisins þar sem lóðin er breytist úr 2.06-S samfélagsþjónusta í 2.06-Íb íbúðarsvæði vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Tillagan skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal einnig kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholti vestra vegna lóðarinnar við Brekkuás 2.
Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2101191
10
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032, dags. 12.01.21
Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101174
11
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöðvar á Íslandi, dags. 11.01.21.
Lögð fram og vísað til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1911372
12
Lokadrög skýrslu varðandi umhverfisuppgjör Garðabæjar.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, gerði nánari grein fyrir helstu niðurstöðum skýrslu varðandi umhverfisuppgjör í starfsemi Garðabæjar.
Bæjarráð vísar skýrslunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101187
13
Bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, dags. 12.01.21.
Lagt fram og vísað til kynningar í fjölskylduráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2101165
14
Tilkynning frá Kópavogi um kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fannborgarreits, dags. 11.01.21.
Bæjarráð vísar tilkynningunni til umfjöllunar skipulagsnefndar.