Umhverfiskerfi Klappir - umhverfisuppgjör
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
31 (22-26). fundur
Umhverfisnefnd leggur til að samstarfi við Klappir verði haldið áfram.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
16. (912). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir vinnu við gerð skýrslu um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021.
Skýrsla um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021 er gerð í samræmi við ESG leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út á árinu 2019. Þessar leiðbeiningar eru byggðar á tillögum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, Samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initiative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er vísað í tilheyrandi viðmið GRI Standard (e. Global Reporting Initiative, GRI100-400) og meginviðmið (e. Reporting Principles, P1-10) alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna (United Nations Global Compact, UNGC).
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða útgáfu á skýrslu um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021 og vísar skýrslunni til kynningar í stofnunum bæjarins og fastanefndum bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
41. (2048). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir drögum að sjálfbærnisuppgjöri Garðabæjar fyrir árið 2021. Í skýrslunni er gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim losunarþáttum sem teknir hafa verið inn í losunarbókhaldið við rekstur Garðabæjar. Ekki er gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim rekstrareiningum sem Garðabær hefur ekki yfirráð yfir þrátt fyrir að bærinn eigi hagsmuna að gæta af rekstri þeirra. Þar undir fellur til dæmis losun frá framræstu landi sem notað er til uppbyggingar.
Bæjarráð að vísa skýrslunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
6 (22-26). fundur
Kristinn Logi frá Klöppum ehf kynnti niðurstöður umhverfisuppgjörs Garðabæjar fyrir árið 2021. Umhverfisnefnd samþykkir uppgjörið en leggur jafnframt áherslu á að uppgjörið sýnir ekki heildarlosun á vegum sveitafélagsins eins og losun frá framræstu landi sem notað er til uppbyggingu.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
35. fundur
Umhverfisuppgjör 2020 Garðabæjar lagt fram. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að unnið verði með niðurstöður uppgjörsins þar sem verði gerð áætlun til að vinna að því að kolefnisjafna stofnanir sveitafélagsins, vísað í vinnu að loftlagsstefnu Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
1. (879). fundur
Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir vinnu við gerð umhverfisuppgjörs Garðabæjar fyrir árið 2019. Umhverfisuppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti Garðabæjar og við vinnslu þess var fylgt leiðbeiningum Nasdaq frá 2019 meginreglum Greenhouse Gas Protocol aðferðarfræðinnar. Jóna lagði til við bæjarstjórn að samþykkja umhverfisuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2019.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til mál.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umhverfisuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2019.
Bæjarráð Garðabæjar
07
2. (1960). fundur
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda, gerði nánari grein fyrir helstu niðurstöðum skýrslu varðandi umhverfisuppgjör í starfsemi Garðabæjar.
Bæjarráð vísar skýrslunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
08
28. fundur
Aron Friðrik Georgsson frá Klöppum kynnir niðurstöður umhverfisuppgjörs Garðabæjar fyrir árið 2019. Umhverfisnefnd samþykkir uppgjörið.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
09
21. fundur
Við innleiðingu heimsmarkmiða er mikilvægt að hafa mælanleg markmið og styður slíkt jafnframt við umhverfisstefnur bæjarins. Umhverfisnefnd samþykkir að ganga til samninga við Klappir.