35. fundur
35. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
08.09.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2109149
01
Umhverfishópar 2021
Brynjar Snær Arnarsson kynnti fyrir nefndinni starf umhverfishópa í sumar. Umhverfisnefnd fagnar miklu og öflugu starfi sem unnið var í umhverfishópum í sumar.
Málsnúmer 2108320
02
Sumarstörfin 2021
Skýrslur unnar af sumarstarfsfólki varðandi úttekt á útivistarsvæðum og hugmyndir af loflagsstefnu Garðabæjar lagðar fram til kynningar.
Málsnúmer 1911372
03
Umhverfiskerfi Klappir - umhverfisuppgjör
Umhverfisuppgjör 2020 Garðabæjar lagt fram. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að unnið verði með niðurstöður uppgjörsins þar sem verði gerð áætlun til að vinna að því að kolefnisjafna stofnanir sveitafélagsins, vísað í vinnu að loftlagsstefnu Garðabæjar.
Málsnúmer 2109150
04
Veiðiréttur, Fish Parner
Fish partner ehf er að óska eftir samstarfi vegna veiðileyfa í Vífilsstaðarvatni. Málið verður afgreitt með endurnýjun á samningi um veiðileyfi í Vífilsstaðarvatni.
Málsnúmer 2105597
05
Mengunarmælingar 2021
Lagt fram.
Málsnúmer 2108194
06
Starfsleyfi Rio Tinto
Á fundi umhverfisnefndar Garðabæjar, sem haldinn var 14. apríl 2021, var fjallað um vöktun á flúor í gróðri sem bærist frá álverinu í Straumsvík. Fram hafði komið í nýlegri rannsókn og mastersritgerð í Umhverfisfræðum frá Háskóla Íslands að álag vegna flúors frá verksmiðjunni væri líklega mest á Garðaholti. Þar áformar Garðabær aukna byggð. Annað tilefni til þess að nefndin tók þetta mál upp var að vitað var að komið væri að því að Umhverfisstofnun fengi til skoðunar / samþykktar nýja umhverfisvöktunaráætlun fyrir álverið. Nefndin gerði ítarlega samþykkt þar sem m.a. var sagt;
,, Umhverfisnefnd telur nauðsynlegt að bæta vöktunaráætlun frá Álverinu fyrir svæðið í heild við endurútgáfu starfsleyfis fyrir álverið í Straumsvík. Mikilvægt er að fá loftgæðamæli á svæðið og samráð verði haft við heilbrigðiseftirlitið’’. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti tillögu umhverfisnefndar á fundi sínum þann 20. apríl 2021.
Af ódagsettu svari Umhverfisstofnunar má ráða að ekki stendur til að verða við óskum Garðabæjar um loftgæðamælistöð eða aukna vöktun.
Umhverfisnefnd samþykkti eftirfarandi bókun sem send verður á Umhverfisstofnun.
Umhverfisnefnd Garðabæjar ítrekar þá afstöðu sem fram kom í samþykkt hennar og bæjarráðs frá því í apríl 2021. Hafa þarf til hliðsjónar við gerð umhverfisvöktunaráætlunar fyrir álverið að fyrirhuguð er uppbygging á íbúðarbyggð á Garðaholti. Nefndin tekur undir álit heilbrigðisnefndar um að þörf er á áþekkri vöktun á Garðaholti líkt og er í Hafnarfirði. Verði áætlunin samþykkt þarf að hafa í henni tímasett endurskoðunarákvæði. Að eigi síðar en t.d. 1. október 2023 komi endurskoðuð áætlun á vöktun á flúor í gróðri á áhrifasvæði álversins og þar sem gert verði ráð fyrir reglubundinni vöktun á flúor og brennisteinsdíoxíði á Garðaholti.
Málsnúmer 2109080
07
Viðburðir í Garðabæ
Tækni -og umhverfissvið mun vinna að bættu skipulagi við að sækja um leyfi fyrir viðburðum í bæjarlandinu og móta stefnu í þeim efnum.
Umhverfisnefnd telur að álag á stíg norðan Vífilsstaðarvatns sé þannig að ekki ætti að auka það með skipulögðum viðburðum og aðstöðusköpun fyrir viðburði verði ekki við vatnið
Málsnúmer 1902106
08
Friðlýsingar - samstarf við Umhverfisstofnun
Athugasemdir við friðlýsingu Skerjafjarðar lagðar fram. Umhverfisstofnun ásamt samráðshópi vinnur að svörum athugasemda.