Beint í efni

Bréf heilbrigðiseftirlitsins varðandi starfsleyfi Rio Tinto í Straumsvík, dags. 09.09.21.

Málsnúmer 2108194

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (1992). fundur

Í bréfinu eru vakin athygli á umfjöllun heilbrigðisnefndar um tillögu að nýju starfsleyfi fyrir álver Rio Tinto á Íslandi hf. í Straumsvík sem er til meðferðar hjá Umhverfisstofnun.

Heilbrigðisnefndin gerir athugasemd við að óbreytt vöktunaráætlun gildi til 2029 og bendir á að leggja þarf fram raunhæft mat á þörf vöktunar á Garðaholti.

Bæjarráð ítrekar bókun frá fundi 20. apríl 2021 og felur bæjarstjóra að koma henni á framfæri við umhverfisstofnun.

„Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að nauðsynlegt sé við endurútgáfu á starfsleyfi fyrir Álverið í Straumsvík að bæta vöktunaráætlun vegna flúormælinga í gróðri fyrir svæðið í heild og þar með talið svæðið á Garðaholti.“

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

35. fundur

Á fundi umhverfisnefndar Garðabæjar, sem haldinn var 14. apríl 2021, var fjallað um vöktun á flúor í gróðri sem bærist frá álverinu í Straumsvík. Fram hafði komið í nýlegri rannsókn og mastersritgerð í Umhverfisfræðum frá Háskóla Íslands að álag vegna flúors frá verksmiðjunni væri líklega mest á Garðaholti. Þar áformar Garðabær aukna byggð. Annað tilefni til þess að nefndin tók þetta mál upp var að vitað var að komið væri að því að Umhverfisstofnun fengi til skoðunar / samþykktar nýja umhverfisvöktunaráætlun fyrir álverið. Nefndin gerði ítarlega samþykkt þar sem m.a. var sagt;

,, Umhverfisnefnd telur nauðsynlegt að bæta vöktunaráætlun frá Álverinu fyrir svæðið í heild við endurútgáfu starfsleyfis fyrir álverið í Straumsvík. Mikilvægt er að fá loftgæðamæli á svæðið og samráð verði haft við heilbrigðiseftirlitið’’. Bæjarráð Garðabæjar samþykkti tillögu umhverfisnefndar á fundi sínum þann 20. apríl 2021.

Af ódagsettu svari Umhverfisstofnunar má ráða að ekki stendur til að verða við óskum Garðabæjar um loftgæðamælistöð eða aukna vöktun.

Umhverfisnefnd samþykkti eftirfarandi bókun sem send verður á Umhverfisstofnun.

Umhverfisnefnd Garðabæjar ítrekar þá afstöðu sem fram kom í samþykkt hennar og bæjarráðs frá því í apríl 2021. Hafa þarf til hliðsjónar við gerð umhverfisvöktunaráætlunar fyrir álverið að fyrirhuguð er uppbygging á íbúðarbyggð á Garðaholti. Nefndin tekur undir álit heilbrigðisnefndar um að þörf er á áþekkri vöktun á Garðaholti líkt og er í Hafnarfirði. Verði áætlunin samþykkt þarf að hafa í henni tímasett endurskoðunarákvæði. Að eigi síðar en t.d. 1. október 2023 komi endurskoðuð áætlun á vöktun á flúor í gróðri á áhrifasvæði álversins og þar sem gert verði ráð fyrir reglubundinni vöktun á flúor og brennisteinsdíoxíði á Garðaholti.