Beint í efni

16. (912). fundur

17.11.2022
Bæjarstjórn Garðabæjar

16. (912). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

17.11.2022

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 3. nóvember 2022 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2211010F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 8/11 ´22.

Björg Fenger, ræddi 1. tl., vegvísi að uppbyggingu miðbæjarsvæðis í Garðabæ, 12. tl., bréf LEX lögmannsstofu f.h. Urriðaholts varðandi athugasemdir við samþykkt bæjarstjórnar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns og 13. tl., bréf Lyftingasambands Íslands varðandi styrk vegna Norðurlandamóts unglinga í ólympískum lyftingum.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2211019F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 15/11 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 5. tl., minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ, 9. tl., drög að skýrslu Klappa um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar 2021.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ og 8. tl., tilkynningu frá innviðaráðuneytinu varðandi tillögur um breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, dags. 07.11.22.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ, og 9. tl., drög að skýrslu Klappa um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar 2021.

Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2211013F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 9/11 ´22.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 1. tl., tilnefningar um íþróttamenn Garðabæjar 2022 og 4. tl., Norðurlandamót í ólympískum lyftingum sem fram fór í Miðgarði helgina 11. - 13. nóvember sl.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211008F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 8/11 ´22.

Margrét Bjarnadóttir ræddi 2. tl., menningarviðburði fyrir skólahópa skólaárið 2022-2023, 3. tl., starfsáætlanir leikskóla 2022-2023 og 4 tl., menntadag Garðabæjar 2022.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2210009F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 2/11 ´22.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2023, 2. tl., menningarviðburði fyrir skólahópa skólaárið 2022-2023, 3. tl. menntadag Garðabæjar 2022, 4. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2022 og 5. tl., úthlutun úr Námsgagnasjóði skólaárið 2022-2023

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 4. tl., forvarnarviku Garðabæjar 2022.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2211011F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 9/11 ´22.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., rannsóknir á lífríki Vífilsstaðavatns og Urriðavatns og 4. tl., samræmingu úrgangsflokkunar.

Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., útikennslu við Vífilsstaðavatn, 3. tl. rannsóknir á lífríki Vífilsstaðavatns og Urriðavatns og 6. tl., mengunarmælingar við strendur, í lækjum og vötnum í Garðabæ.

Björg Fenger, ræddi 3. tl., rannsóknir á lífríki Vífilsstaðavatns og Urriðavatns, 4. tl., samræmingu úrgangsflokkunar og 6. tl., mengunarmælingar við strendur, í lækjum og vötnum í Garðabæ.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., rannsóknir á lífríki Vífilsstaðavatns og Urriðavatns, 4. tl., samræmingu úrgangsflokkunar og 6. tl., mengunarmælingar við strendur, í lækjum og vötnum í Garðabæ.

Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 6. tl., mengunarmælingar við strendur, í lækjum og vötnum í Garðabæ.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2210020F

07

Fundargerð ungmennaráðs frá 18/10 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi verkefni ungmennaráðs og lýsti ánægju með framkomna fundargerð ráðsins.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi verkefni ungmennaráðs og hugmynd um fund ungmennaráðs með bæjarstjórn.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2202013

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 31/10 ´22.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 2201365

09

Fundargerð stjórnar SSH frá 7/11 ´22.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., drög að samningi um umdæmisráð barnaverndar höfuðborgarsvæðisins að Reykjavík undanskilinni.

Björg Fenger, ræddi 8. tl., uppbyggingu og rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., samtal við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um samstarf, helstu verkefni og áskoranir, 2. tl., loftlagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið, 8. tl., uppbygging og rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi skýrslu starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk. Þá ræddi Sara Dögg 4. tl., stofnun Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.

Almar Guðmundsson, ræddi skýrslu starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 4. tl., stofnun Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi skýrslu starfshóps sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1911372

10

Umhverfisuppgjör Garðabæjar 2021.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir vinnu við gerð skýrslu um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021.

Skýrsla um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021 er gerð í samræmi við ESG leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út á árinu 2019. Þessar leiðbeiningar eru byggðar á tillögum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, Samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initiative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er vísað í tilheyrandi viðmið GRI Standard (e. Global Reporting Initiative, GRI100-400) og meginviðmið (e. Reporting Principles, P1-10) alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna (United Nations Global Compact, UNGC).

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða útgáfu á skýrslu um sjálfbærniuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2021 og vísar skýrslunni til kynningar í stofnunum bæjarins og fastanefndum bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2206112

11

Fjárhagsáætlun 2023 - Tillaga um álagningarhlutfall útsvars.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars á árinu 2023.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2023 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2022 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Við í Viðreisn teljum ekki réttlætanlegt að halda útsvarsprósentu óbreyttri á sama tíma og lögbundin þjónusta eykst og allar aðrar álögur sveitarfélagsins hækka umtalsvert.

Hækkun þjónustugjalda bitnar fyrst og fremst á barnafjölskyldum. Barnafjölskyldur bera nú þegar þyngri byrðar en í öðrum sveitarfélögum og fasteignaskattar hækka umtalsvert vegna hækkunar á fasteignamati. Á sama tíma stefnir í að halli verði á rekstri bæjarsjóðs og hann ósjálfbær, sem er staða sem þarf að bregðast við.

Viðreisn talar fyrir ábyrgum og sjálfbærum rekstri með lágum álögum, það er mikilvægt hagsmunamál almennings. Það stefnir í ósjálfbæran rekstur hjá sveitarfélaginu sem kallar á lántöku, en kostnaður við vexti og lánakostnað hjá bæjarsjóði hafa vaxið á undanförnum árum og heldur áfram að vaxa í verðbólgu og háum vöxtum íslenskrar krónu.

Því sit ég hjá við afgreiðslu tillögunnar um óbreytt útsvar fyrir árið 2023.“

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.

„Garðabæjarlistinn minnir á að útsvar er sá tekjustofn sveitarfélaga sem leggst hlutfallslega jafnt á íbúa bæjarins og við teljum eðlilegt að nota hann í meira mæli en nú er gert til þess að jafna stöðu fólks. Við sitjum því hjá.“

Sara Dögg Svanhildarsdóttir, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, tók til máls.

Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SHJ,AG,BF,MB,HBE,GVG,GS,HEB). Þrír bæjarfulltrúar sátu hjá. (ÞÞ,IA,SDS)