Beint í efni

Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra

Málsnúmer 2005435

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (889). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Brekkuás 2 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga . Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær. (Mál nr. 2005435)

Bæjarráð Garðabæjar

02

32 (1990). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Brekkuás 2 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga . Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni auglýsingu í samræmi við 1.mgr. 43.greinar og 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóð fyrir leikskóla breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk og opið leiksvæði. Heimilt verður að byggja einnar hæðar hús með 6-7 íbúðum.
Tillagan var í auglýsingu frá 7.maí til 18.júní 2021. Alls bárust 7 erindi innan athugasemdafrests þar sem athugasemdir eru gerðar við tillöguna og við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis og var auglýst samhliða. Athugasemdir lagðar fram.
Skipulagsnefnd áréttar enn og aftur mikilvægi þess að starfsemi búsetukjarna fyrir fatlað fólk verði valinn góður staður og óbyggða svæðið ofan Brekkuás uppfyllir þau skilyrði með ágætum.
Lögð fram tillaga að greinargerð þar sem fram koma svör Garðabæjar við þeim athugasemdum sem borist hafa. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða greinargerð.
Skiplagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts (Ásahverfi) vestra vegna breytingar á lóð Brekkuás 2 eftir auglýsingu. Innsendar athugasemdir lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna breytingar á skilgreiningu á lóðinni við Brekkuás 2 sem breytist úr lóð fyrir samfélagsþjónustu í lóð fyrir íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk. (Mál nr. 2005435)

Bæjarráð Garðabæjar

06

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna breytinga á skilgreiningu á lóðinni við Brekkuás 2 sem breytist úr lóð fyrir samfélagsþjónustu í lóð fyrir íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa á meðan á forkynningu stóð.
Þar koma fram óskir um að leikskólalóð við Brekkuás verði skilgreind sem grænt opið svæði.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd áréttar mikilvægi þess að starfsemi búsetukjarna fyrir fatlað fólk verði valinn góður staður og óbyggða svæðið ofan Brekkuás uppfyllir þau skilyrði með ágætum. Sú tillaga að breyta lóð fyrir leikskóla í lóð fyrir einnar hæðar fjölbýlishús og leiksvæði sé ekki íþyngjandi fyrir nágrennið né líklegt að það dragi úr verði aðliggjandi fasteigna. Auk þess lækkar hámarkshæð byggingar á lóð úr 6 m í 4,5 m og heimilað byggingarmagn á lóð sem takmarkast af byggingarreit minnkar úr c.a.3000 m2 í 1000 m2.
Skiplagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 2.mgr. 43.greinar og 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás 2 breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. (Mál nr. 2005435)

Bæjarráð Garðabæjar

09

2. (1960). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás 2 breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir því að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás breytist í lóð fyrir fjölbýlishús sem ætlað er hreyfihömluðum. Skiplagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Þær breytingar hafa verið gerðar frá fyrri tillögu að lögun byggingarreits breytist í kjölfar samráðs við fjölskyldusvið um mögulegar útfærslur á byggingunni með tilliti til búsetunnar. Skipulagsnefnd samþykkir forkynningu tillögunnar í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún kynnt samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

13. fundur

Umsögnum og ábendingum vegna lýsingar tillögu að aðalskipulagsbreytingu sem nær til óbyggðs svæðis við Brekkuás vísað til úrvinnslu tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra sem nær til sama svæðis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra sem gerir ráð fyrir því að leikskólalóð við Brekkuás breytist í lóð fyrir búsetukjarna. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráð við fjölskyldusvið um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að tillögunni verði breytt þannig svigrúm til útfærslu byggingarinnar verði aukið m.a. með tilliti til þess að ákvörðun um aðkomu að íbúðum verði mótuð við hönnun hússins. Breytingartillagan mun nú hljóta kynningu samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

13

3. fundur

Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts

Tekið er fyrir mál nr.2005435 - búsetukjarni að Brekkuási 2. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri situr fundinn undir þessum lið.

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis (Hraunsholt vestra) vegna fyrirhugaðs búsetukjarna í Brekkuási 2. Búsetukjarninn gerir ráð fyrir 6 íbúðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu og mögulegum staðsetningum fyrir fleiri búsetukjarna. Fram kom athugasemd varðandi staðsetningar og hvort ekki komi til álita að kaupa einstaklingsíbúðir í stað áherslna á kjarna. Því var einnig velt upp hver raunveruleg nýting væri á sameiginlegu rými í kjarnanum á Unnargrund og hvort ekki væri tilefni til að tengja það rými, starfsmannarýminu. Bent var á hvort ekki væri unnt að úthluta í íbúðirnar fyrr og tryggja þannig þátttöku væntanlegra íbúa hönnunarferlinu. Samráðshópurinn leggur áherslu á að unnið verði markvisst að undirbúningi fleiri fjölbreyttra búsetuúrræða fyrir fatlað fólk Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

13. (872). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við Brekkuás 2 verði breytt úr leikskólalóð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. (Samfélagsþjónusta) (Mál nr. 2005435)

Fjölskylduráð Garðabæjar

15

8. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 2005435 búsetukjarni Brekkuás 2.
Skipulagsnefnd vísaði málinu til fjölskylduráðs til kynningar. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og Pála Marie Einarsdóttir sitja fundinn undir þessum lið og kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis (Hraunsholt vestra) vegna fyrirhugaðs búsetukjarna í Brekkuási 2. Búsetukjarninn gerir ráð fyrir 6 íbúðum ásamt aðstöðu fyrir starfsfólk. Auk þess eru lagðar fram innsendar ábendingar sem bárust á forkynningarstigi.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir málinu og mögulegum staðsetningum fyrir fleiri búsetukjarna.
Fjölskylduráð leggur áherslu á að unnið verði markvisst að undirbúningi fleiri búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð Garðabæjar

16

36. (1944). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við Brekkuás 2 verði breytt úr leikskólalóð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. (Samfélagsþjónusta)

Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásahverfis (Hraunsholts vestra) sem gerir ráð fyrir því að leikskólalóð breytist í íbúðarhúslóð sem ætluð er íbúðarkjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Svæðið er skilgreint í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem lóð fyrir samfélagsþjónustu. Þó hér sé um íbúðir að ræða lítur skipulagsnefnd svo á að deiliskipulagsbreytingin kalli ekki á aðalskipulagsbreytingu þar sem hér er einnig um samfélagsþjónustu að ræða.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráðsfundum sem hann hefur átt með starfsmönnum fjölskyldusviðs.
Tillagan hefur verið forkynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar sem borist hafa lagðar fram.
Tillögunni vísað til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlaða einstaklinga. Tillagan var kynnt á íbúafundi þann 23.júní sl.
Lagðar fram ábendingar sem borist hafa. Þar koma fram mótmæli við tillögunni. Tillögu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og fjölskyldusviði.

Baldur Ó. Svavarsson bókaði eftirfarandi: Undiritaður benti þegar í upphafskynningu þess máls, á fundi skipulagsnefndar í vetur, hversu óheppileg þessi staðsetning búsetukjarna við Bergás og Brekkuás er. Að vísu koma þær athugsemdir ekki fram í fundagerðum enda þær ekki ítarlegar, nema að viðkomandi athugasemd sé bókuð. Því er það að að fulltrúi lýðræðisflokkanna í skipulagsnefnd bókar eftirfarandi:

Það er jákvætt að bæjaryfirvöld hyggi á gerð fleiri búsetukjarna í bæjarfélaginu, enda löngu tímabært. Það verður hins vegar að teljast óheppilegt að meirihlutinn skuli ekki hafa mótað skýra stefnu hvað þessa uppbyggingu áhrærir, né betri valkosti hvað staðsetningu varðar.

Við uppbyggingu og staðsetningu búsetukjarna eiga þarfir og réttindi notenda að vera í forgangi, svo sem m.a. tækifæri til að velja sér búsetustað til jafns við aðra. Skýrt er kveðið á um þessi réttindi í alþjóðlegum samningum og í stefnuskrá Landsamtaka þorskahjálpar, enda augljóst.

Verði af þessari fyrirætlan þá verða þrír kjarnar saman á svæði sem er hefur um 500 m radíus. Það eru um 850 m milli búsetukjarna Unnargrundar og ætlaðrar lóðar við Bergás og einungis um 250 m milli ætlaðra lóða við Bergáss og Brekkuáss. Hinir völdu kostir eru þröngir og skerða auk þess rétt þeirra sem þegar búa við þessar götur, sérstaklega á þetta við Bergás.
Benda má á marga aðra kosti um góða staðsetningu svo sem í Urriðaholti sem enn er í uppbyggingu og fjölmargir möguleikar auk þess sem kjarni af þessu tagi fellur vel að þeirra markmiðum og fjölþætt samfélag þar að sögn. Þá er gríðarlega stórt ósnert svæði efst á Arnarnesi þar sem áður var fyrirhugað að byggja. En þá erum við reyndar komin í mjög „viðkvæmann“ bæjarhluta hvað uppbygginu og breytingar varðar, sé horft til fyrri ákvarðana meirihlutans í gengum tíðina.
Hugsum lengra og skipuleggjum betur. Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd.