11. (889). fundur
11. (889). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
02.09.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Gunnar Valur Gíslason
- Gunnar Einarsson
- Guðfinnur Sigurvinsson
- Kjartan Örn Sigurðsson
- Kristjana F Sigursteinsdóttir
- Ingvar Arnarson
- Harpa Þorsteinsdóttir
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vefsíðu bæjarins.
Almar Guðmundsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Í upphafi fundar minntist forseti Sigrúnar Gísladóttur, fv. skólastjóra Flataskóla og fv. bæjarfulltrúa, en Sigrún lést í gær eftir skammvinn veikindi. Bæjarfulltrúar risu úr sætum og heiðruðu minningu Sigrúnar með einnar mínútu þögn.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 19. ágúst 2021 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2108019F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 24/8 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um stöðu innritunar barna í leikskóla bæjarins og fór fram á að bókun Söru Daggar Svanhildardóttur verði færð í fundargerð bæjarstjórnar.
"Garðabæjarlistinn gagnrýnir þau vinnubrögð sem bæjarstjóri kýs að viðhafa í upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa. Í vikunni sem leið óskuðu bæjarfulltrúi og nefndarmaður leikskólanefndar ítrekað eftir upplýsingum frá fræðslusviði um innritun á leikskóla sveitarfélagsins. Þeirri ósk var ítrekað hafnað á þeim forsendum að engar upplýsingar yrðu kynntar fyrr en á fyrirhuguðum fundi leikskólanefndar sem fram fer þann 15. september. Sú tímasetning finnst okkur í minnihlutanum ótæk miðað við þá stöðu sem uppi er varðandi innritun vegna skorts á leikskólaplássi.
Á bæjarstjórnarfundi þann 19. ágúst síðastliðinn fer bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar með upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólana, sömu upplýsingar og fulltrúar Garðabæjarlistans höfðu óskað eftir án árangurs."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs varðandi málefni stafrænnar þróunar hjá sveitarfélögunum og upplýsti um að stafrænt ráð Sambandsins hafi kynnt niðurstöðu, sem byggir á skoðunarkönnun sem gerð var meðal sveitarfélaga, um þau verkefni sem unnið verði nánar að sameiginlega fyrir sveitarfélögin.
Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2108025F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 31/8 ´21.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á málefnum Sorpu bs.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., kynningu á málefnum Sorpu bs.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., kynningu á málefnum Sorpu bs., og 5. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Brekkuás.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á málefnum Sorpu bs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi kynningu á málefnum Sorpu bs.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 16. tl., áskorun varðandi sumarfrístund í Garðabæ.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 16. tl., áskorun varðandi sumarfrístund í Garðabæ.
Kristjana F. Sigursteinsdóttir, ræddi 20. tl., tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi skýrslu um styrkingu leikskólastigsins.
Fundargerðin sem er 21 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2108010F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 18/8 ´21.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar, 2. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021 og 3. tl., kynningu og umfjöllun á skýrslu um stöðu barna með fjölþættan vanda.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 2. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls og ræddi í þessu samhengi brýna nauðsyn á stækkun húsnæðis Fjölbrautaskólans í Garðabæ og möguleikum í því sambandi til að styðja ungt fólk.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2108022F
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 26/8 ´21.
Sigurður Guðmundsson ræddi 5. tl., breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda, 10. tl., stækkun lóðar við Kauptún 1 og 15. tl., reglur um biðskyldu í Urriðaholti og Molduhrauni.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2106038F
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 25/8 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2101447
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/8 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2102176
07
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 16/8 ´21.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2006130
08
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2021.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.100.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,20% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.100.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 1.100.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga, samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2021.
Málsnúmer 1907110
09
Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð.
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir tillögu að breytingu á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð en tillaga er um að greinin hljóði svo:
"Fjárhagsaðstoð er ekki veitt aftur í tímann nema veigamikil rök mæli með því.
Með umsókn um fjárhagsaðstoð aftur í tímann skal fylgja ítarlegur rökstuðningur sem styður hvers vegna umsækjanda hafi verið ómögulegt að sækja um í þeim mánuði sem umsókn aftur í tímann tekur til. Einnig skulu fylgja gögn, s.s. læknisvottorð, því til stuðnings. Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en 4 mánuði frá því að umsókn er lögð fram sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um."
Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2108721
10
Tillaga Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Ingvar Arnarson, lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að þegar að samið er um stuðning við félög í bæjarfélaginu sem bjóða upp á skipulagt íþrótta- og tómstundastarf verði tryggt að félögin bjóði systkina- og fjölgreinaafslátt."
Greinargerð.
Með systkina- og fjölgreinaafslætti er stigið mikilvægt skref í að minnka útgjöld barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takt við fjölskylduvænar áherslur. Ávinningur af slíku felur auk þess í sér að tryggja að öll börn hafi sem jafnastan aðgang að íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt því að fá aukin tækifæri til þess að prófa fleiri greinar.
Í samanburði við nágrannasveitarfélögin þá er Garðabær eftirbátur nágrannasveitarfélaga hvað varðar systkinaafslætti og jafnframt eru æfingagjöld í hærra lagi. það er því ljóst að með þessari breytingu myndi létta á útgjöldum barnafjölskyldna. Útfærsla systkinaafsláttar eru með ýmsu móti, í nágrannasveitarfélögum er afsláttur á bilinu 10-15%, útfærður á mismunandi vegu og því mikilvægt að koma á samræmi á milli íþróttafélaga innan sveitarfélagsins.
Gunnar Einarsson, tók til máls og lagði til að tillögunni verði vísað til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Kjartan Örn Sigurðsson, tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Málsnúmer 2101001
11
Kosning fulltrúa í undirkjörstjórnir vegna kosninga til Alþingis 25. september 2021.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og ræddi aðgengi fatlaðs fólk að kjörstöðum og nauðsyn þess að taka á móti ábendingum um það sem betur má fara til að bæta aðgengi.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi aðila í undirkjörstjórn og hverfiskjörstjórn á Álftanesi.
Aðalsteinn Baldursson, Anna Kristmundsdóttir, Anna Margrét Halldórsdóttir, Anna R. Möller, Auður Atladóttir, Auður Björgvinsdóttir, Árni Gunnar Kristjánsson, Ásgeir Örn Sigurpálsson, Birta María Sigmundsdóttir, Daníel Jósefsson, Dóra Viðarsdóttir, Dóra Þórisdóttir, Dröfn Ágústsdóttir, Eiríkur Sigurðsson, Elín Guðný Gunnarsdóttir, Elísa Margrét Pálmadóttir, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Fanney Óskarsdóttir, Guðfinna Dröfn Aradóttir, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Guðríður Eyvindardóttir, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Gunnsteinn Geirsson, Halla Þórisdóttir, Haukur Steinn Helgason, Helga G. Sigurðardóttir, Herdís Jónsdóttir, Herdís Sigurbergsdóttir, Hilmar Kristjánsson, Hjördís Jóna Gísladóttir, Íris Rut Erlingsdóttir, Íris Rut Sigurbergsdóttir, Katrín Halldórsdóttir, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Kolbrún Sigmundsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Kristín Rós Björnsdóttir, Ragnheiður Stephensen, Rakel Einarsdóttir, Rúna Lísa Þráinsdóttir, Sara Þrastardóttir, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, Sigríður Dís Guðjónsdóttir, Skarphéðinn Jónsson, Snædís Björnsdóttir, Sæunn Eiríksdóttir, Vala Dröfn Hauksdóttir, Þorgerður Kristinsdóttir, Þórdís Tryggvadóttir
Hverfiskjörstjórn á Álftanesi.
Guðrún Jónsdóttir, Lúðvík Hjalti Jónsson, Andrés Sigurðsson