Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 24/8 ´21.

Málsnúmer 2108019F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (889). fundur

Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., fyrirspurn Garðabæjarlistans um stöðu innritunar barna í leikskóla bæjarins og fór fram á að bókun Söru Daggar Svanhildardóttur verði færð í fundargerð bæjarstjórnar.

"Garðabæjarlistinn gagnrýnir þau vinnubrögð sem bæjarstjóri kýs að viðhafa í upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa. Í vikunni sem leið óskuðu bæjarfulltrúi og nefndarmaður leikskólanefndar ítrekað eftir upplýsingum frá fræðslusviði um innritun á leikskóla sveitarfélagsins. Þeirri ósk var ítrekað hafnað á þeim forsendum að engar upplýsingar yrðu kynntar fyrr en á fyrirhuguðum fundi leikskólanefndar sem fram fer þann 15. september. Sú tímasetning finnst okkur í minnihlutanum ótæk miðað við þá stöðu sem uppi er varðandi innritun vegna skorts á leikskólaplássi.
Á bæjarstjórnarfundi þann 19. ágúst síðastliðinn fer bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar með upplýsingar um stöðu innritunar í leikskólana, sömu upplýsingar og fulltrúar Garðabæjarlistans höfðu óskað eftir án árangurs."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs varðandi málefni stafrænnar þróunar hjá sveitarfélögunum og upplýsti um að stafrænt ráð Sambandsins hafi kynnt niðurstöðu, sem byggir á skoðunarkönnun sem gerð var meðal sveitarfélaga, um þau verkefni sem unnið verði nánar að sameiginlega fyrir sveitarfélögin.

Fundargerðin sem er 13 tl., er samþykkt samhljóða.