Beint í efni

Fjárhagsaðstoð - þróunarvinna

Málsnúmer 1907110

Ferill máls

Velferðarráð Garðabæjar

01

4. fundur

Minnisblað vegna fjárhagsaðstoðar lagt fram til kynningar.

Minnisblað vegna fjárhagsaðstoðar lagt fram. Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirhugað verklag.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

11. (889). fundur

Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir tillögu að breytingu á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð en tillaga er um að greinin hljóði svo:

"Fjárhagsaðstoð er ekki veitt aftur í tímann nema veigamikil rök mæli með því.
Með umsókn um fjárhagsaðstoð aftur í tímann skal fylgja ítarlegur rökstuðningur sem styður hvers vegna umsækjanda hafi verið ómögulegt að sækja um í þeim mánuði sem umsókn aftur í tímann tekur til. Einnig skulu fylgja gögn, s.s. læknisvottorð, því til stuðnings. Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en 4 mánuði frá því að umsókn er lögð fram sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og verður skilyrðum reglna þessara fyrir fjárhagsaðstoð að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um."

Tillaga um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

03

32 (1990). fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

9. fundur

Lagðar eru fyrir ráðið breytingartillögur á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ varðandi skilyrði greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann.

Teknar eru fyrir breytingartillögur á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ varðandi skilyrði greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu fjölskylduráðs að leggja drögin fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.