Beint í efni

9. fundur

18.08.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

9. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

18.08.2021

Kl. 16:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Margrét Íris Baldursdóttir - varamaður
  • Kristín Einarsdóttir - varamaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - umsjónarfélagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1911163

01

Lýðræðisstefna Garðabæjar- endurskoðun

Lagt er fram til kynningar og umræðu núverandi staða á endurskoðun Lýðræðisstefnu Garðabæjar.

Tekið er fyrir mál nr. 1911163, endurskoðun á Lýðræðisstefnu Garðabæjar. Fyrir liggja drög að stefnu sem byggir á markmiðum um að efla lýðræðisleg gildi. Einnig fylgja með drög að aðgerðaráætlun. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með fram komin drög. Mun ráðið skoða innihald þeirra frekar og koma ábendingum á framfæri við Huldu Hauksdóttur.

Málsnúmer 1903268

02

Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021

Lagðar eru fram tölulegar upplýsingar í barnavernd janúar til júní 2021 og fjárhagsaðstoð janúar til júlí 2021.

Tekið er fyrir mál nr. 1903268, tölulegar upplýsingar er varða velferð barna og fjölskyldna. Fjallað var um málið og helstu upplýsingar.

Málsnúmer 2101189

03

Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH

Lögð er fram til kynningar og umfjöllunar skýrsla um stöðu barna með fjölþættan vanda sem unnin var af stjórnendum barnaverndar í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og birt vorið 2021. Í skýrslunni kemur m.a. fram að fjöldi barna sem vistaður er í einkaúrræðum hefur aukist umtalsvert undanfarin ár og mikil kostnaðaraukning vegna vistunar leggst á sveitarfélögin. Börnin sem um ræðir eru fædd um og eftir 2005 og ljóst að búið er að reyna öll önnur úrræði áður en til vistunar kemur. Einnig kemur fram að skortur er á fósturheimilum sem geta sinnt styrktu fóstri og að 40-50 meðferðarpláss á meðferðarheimilum BVS hafa verið lögð niður án þess að önnur úrræði hafi komi í staðinn.

Tekið er fyrir mál nr. 2101189, kynning og umfjöllun á skýrslu um stöðu barna með fjölþættan vanda. Fyrir liggur að sveitarfélög og ríki þurfi að eiga samráð um niðurstöður skýrslunnar og leita leiða til að bregðast við þeim brýna vanda sem við blasir í málefnum barna með fjölþættum vanda. Skortur er á nauðsynlegum og viðeigandi úrræðum af hálfu ríkisins fyrir börn með fjölþættan vanda og er mikilvægt að aðgangur að skilvirkum úrræðum fyrir börn og fjölskyldur þeirra verði tryggður sem allra fyrst. Fjölskylduráð Garðabæjar mun fylgjast með framgangi málsins og tekur undir þær áhyggjur sem fram koma í skýrslunni um stöðu þessa viðkvæma hóps.

Málsnúmer 2107259

04

Beiðni um úttekt á stuðningsfjölskyldu

Úttekt á aðstæðum umsækjenda um stuðningsfjölsylduleyfi lögð fram til afgreiðslu fjölskylduráðs.

Tekið er fyrir mál nr. 2107259, úttekt á umsækjendum um stuðningsfjölskylduleyfi. Fjölskylduráð mælir með útgáfu stuðningsfjölskylduleyfis. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2106267

05

Beiðni um endurúttekt á stuðningsfjölskyldu

Endurúttekt á aðstæðum umsækjenda um stuðningsfjölsylduleyfi lögð fram til afgreiðslu fjölskylduráðs.

Tekið er fyrir mál nr. 2106267, endurúttekt á umsækjendum um stuðningsfjölskylduleyfi. Fjölskylduráð mælir með endurútgáfu stuðningsfjölskylduleyfis. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2108148

06

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108148, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2108192

07

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108192, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2108177

08

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108177 umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2108176

09

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108176, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 2108175

10

Umsókn um fjárhagsaðstoð - trygging húsaleigu

Lögð er fyrir ráðið umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu.

Tekið er fyrir mál nr. 2108175, umsókn um styrk til greiðslu tryggingar húsaleigu. Fjölskylduráð fjallar um málið og samþykkir að verða við erindinu. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.

Málsnúmer 1907110

11

Fjárhagsaðstoð- þróunarvinna

Lagðar eru fyrir ráðið breytingartillögur á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ varðandi skilyrði greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann.

Teknar eru fyrir breytingartillögur á 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ varðandi skilyrði greiðslu fjárhagsaðstoðar aftur í tímann. Fjölskylduráð fjallar um drögin og gerir ekki athugasemdir. Samþykkt er af hálfu fjölskylduráðs að leggja drögin fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til afgreiðslu.

Málsnúmer 2105145

12

Ósk um endurupptöku á ákvörðun um lok á leigusamningi í félagslegri leiguíbúð

Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 2105145, beiðni um endurskoðun ákvörðunar um lok leigusamnings í ljósi nýrra upplýsinga í málinu.

Tekið er fyrir mál nr. 2105145, beiðni um endurskoðun ákvörðunar um lok á leigusamningi í félagslegu leiguhúsnæði. Fjölskylduráð fjallaði um málið og frestaði afgrieðslu þess til næsta fundar. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðarinnar.